- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
190

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

190

Landskjálftar.

3. LandskjálftaP;

í öllum eldfjallalöndum eru jarðskjálftar tíðir, þó þurfa
þeir ekki beinlinis að orsakast af eldgosum eða standa í
sambandi við þau1), Þegar hinir mestu jarðskjálftar ganga,
bæra eldfjöllin oft ekki á sér og stórum eldgosum fylgja
stundum mjög litlar hræringar. Jarðfræðisrannsóknir hafa
svnt. að landskjálftakippir eru nátengdir brestiun og
sprung-um i jarðarskorpunni; þegar landspildur siga, kubbast i
sundur eða hlykkjast i fellingar af hliðarþrystingi, skelfur
jörðin og titrar, og getur þá orðið margt jarðrask og miklar
skemdir, þó hvergi losni um gosvegi eldfjallanna. Eldgos
og jarðskjálftar standa i nánu sambandi við kólnun og
sam-drátt hnattarins. Sköpulag og landaskipun jarðar hefir smátt
og smátt myndast á löngum tima fyrir samverkun ytri krafta
gufuhvolfsins og innri krafta jarðarinnar. Jarðskjálftarnir
eru vottur þess, að hin innri öfl vinna enn að jarðarsmiðinni
á sama hátt sem fyr. Jarðarskorpan hefir á sumum stöðum
verið veikari fyrir en á öðrum, og þar hafa landskjálftar
verið tíðastir, sumstaðar með gosum, sumstaðar án þeirra.
Af þvi hnötturinn smátt og smátt dregst saman fyrir
kóln-unar sakir, verður jarðarskorpan að síga að sama skapi eða
hrukkast i fellingar. Jarðskjálftar eru viða tiðir fram með
stórum fjallgörðum, þar sem jarðbylgjurnar eru hægt og
hægt að ýtast upp af samdrættinum. A Islandi eru ekki
til neinir fjallgarðar myndaðir af jarðlagafellingum, land
vort tilheyrir hinum flatvöxnu svæðum jarðarinnar, þar sem
samdráttarhreyfingin gengur beint niður á við.

Landskjálftar á Islandi eru oftast bundnir við sérstök

’) Um jarðskjálfta set eg hér aðeins stutt yfirlit, með því að eg
hefi ítarlega lýst þeim í hók minni: „Landskjálftar á Islandi", Kmhöfn
1905 og vísa eg til hennar. Um alment eðli jarðskjálfta hefi eg og
ritað í Andvara 8. árg. 1882, bls. 58-84.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0202.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free