Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Blágrvti.
253
með íhvolfum bugðum á samskeytunum; það kemur og
fyTÍr. að stuðlarnir skiftast i kúlur. Stuðlar úr blágrýti
eru mjög mismunandi að stærð og geta jafnvel orðið 70
—80 feta háir eða hærri. Stuðlabergshamrar eru mjög
víða til á Islandi; einna einkennilegast er stuðlabergið
hjá Stapa á Snæfellsnesi; þar hefir brimið brotið stóra
hella i bjargið, sem fyr var getið (I, bls. 63). Fallegt
stuðlaberg er lika í Hrappsey, við Goðafoss og Eldeyjar-
W. Howell.
108. mynd. Stuðlaberg í Lómagnúpi.
foss, nærri Fróðá á Snæfellsnesi, við Rauðamel,
Litlanes-foss í Héraði, nærri Brókarhrauni í Norðurárdal, við Hnúk
i Yatnsdal, i fjórsárdal og á ótal öðrum stöðum.
Nafn-kunnur er klettaflötur hjá Kirkjubæ á Síðu, sem kallaður
er Kirkjugólf; flöturinn virðist reglulega samsettur af
sexhyrndum hellum, en það eru raunar endar á
blágrýtis-stuðlum, sem standa djúpt i jörðu.
Utliti blágrýtisfjalla hefir fyr verið að nokkru lýst, en
bezt sést bygging þeirra i bröttum fjallshlíðum, sem vita
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>