- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
300

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

300

Sævarraenjar. 300

strandlína kvað líka vera í Þrándarholtsfjalli nokkru hærra.
Gamlir brimsorfnir hellar eru lika undir Eyjafjöllum og i
Mýrdal. Nálægt Reykjavík eru einnig sævarmenjar hér og
hvar. Fram með Fossvogi norðanverðum eru 30—40 feta
háir hamrar af leir, sandi, móhellu og hnullungabergi og
þar er allmikið af skeljum af ymsum tegundum; við
Rauð-ará og viðar nærri Reykjavik hafa lika fundist skeljar og í
Oskjuhlið og viðar eru gömul fjöruborð með núnu grjóti og
sjóbörðum klettum, ennfremur eru skeljar i leirbökkum við
Elliðaárvoga. Sævarmenjar glöggar sýna, að láglendin i
Leirársveit, i Borgarfirði og á Mýrum hafa verið i sjó upp
í dalamynni; þar sjást víða leirbakkar háir við sjó og
ár-farvegi, möl og ægisandur undir jarðvegi og sumstaðar
skeljar fjær og nær sjó. Hjá Neðranesi við Þverá er mikið
af skeljum l1/^ milu frá sjó og nokkuð við Kaðalstaði og
Flóku. A Snæfellsnesi eru allmargar sævarmenjar,
malar-rindar og strandlinur. Olduhryggur i Staðarsveit er
al-kunnur, það er malarhryggur ákaflega langur og víða eru
strandlínur á nesinu og brimsorfið hnullungagrjót, einkum
að norðanverðu. Forn skeljamulningur hefir lika fundist
hátt i Búlandshöfða og víðar á Snæfellsnesi. Kringum
Hvammsfjörð og Gilsfjörð eru viða gömul fjöruborð og
skeljar sumstaðar, t. d. við Laxá, í Saurbæ og við Núp á
Skarðsströnd.

Þó töluverðar sævarmenjar séu á Norðurlandi, þá eru
þær yfirleitt minni og óglöggari en fyrir sunnan og vestan.
Pó er enginn efi á þvi, að sjór hefir þar áður tekið yfir hin
fáu sléttlendi og náð upp i dali. Fram með Hrútafirði eru
miklir melhjallar og nokkrir við Miðfjörð, fram með
Vatns-nesi er brimpallur, 150—200 fet á hæð. Húnafjörður hefir
fyrrum tekið yfir alt undirlendi við Hópið og hafa þrír
firðir gengið upp í Víðidal, Vatnsdal og Svínadal; hafa
verið margár klettaeyjar i fióa þessum að vestanverðu; í
bökkum Viðidalsár hafa fundist skeljar. Brimhjallar eru
einnig kringum Skaga og reglulegir malarrindar sumstaðar
hver upp af öðrum, einkum við Rekavatn hjá Höfnum.
Inn yfir Skagafjarðarundirlendið hefir gamall fjörður gengið,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0312.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free