- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
309

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

300 Sævarraenjar.

309

ofan á leirnum, bæði norðan til i Evrópu og i
Norður-Ame-riku. Rannsókn á sævarleifum og sævarbreytingum er enn
í bernsku og við nánari athugun hins einstaka mun eflaust
finnast margt fróðlegt um loftslagsbreytingar og afstöðu
skeljabakka við fornar og nýjar isaldarmenjar.

4. Yfirlit yflr myndunarsögu landsins.

I upphafi bókarinnar gátum vér þess, að
jarðfræðis-rannsóknir hefðu sýnt, að öll líkindi væru til þess, að
eld-brunnin landbrú hefði til forna náð um Atlantshaf þvert,
frá Skotlandi til Grænlands, um Færeyjar og Tsland.
Blá-grýtishraun, til orðin af eldgosum á »tertiera« timanum,
taka yfir stór landsvæði á útjöðrum Atlantshafsins um
mið-bikið, og væri þessi blágrýtisflæmi sameinuð, mundu þau
verða að breiðu hraunbelti, sem næðu yfir hafið, og mundu
þekja afarmikið svæði; þeir blágrýtiskaflar, sem eftir eru.
ná yfir 2400 ferh. milur að minsta kosti.

Vestanvert á Skotlandi og norðan til á írlandi er
eld-gosasvæði mikið i þrem hlutum, sem kendir eru við
Arnim-héraðið norðaustan til á Irlandi, eyjuna Mull og nálægar
eyjar, eyjuna Skye og aðrar fleiri, allar i Suðureyjum.
Fyrir utan þessi svæði er urmull af blágrýtisgöngum, sem
brotist hafa gegnum eldri myndanir, og taka þeir yfir 2400
ferh. mílna svæði. Blágrýtisfjöll þessi eru yngri en hin
yngstu kritarlög og eldri en isöld, eða með öðrum orðum
frá tertiera tímanum. A Irlandi liggur blágrýtið ofan á
krít og er 1000 feta þykt, á Mull er þyktin 3500 fet og
þar eru krítar- og júra-lög undir blágrýtinu; á Skye eru
lika júralög undir og þar er þyktin 2000 fet. Blágrýtisfjöll
þessi hafa áður náð yfir miklu stærra svæði vestur og
norður til hafs. Gosin, sem mynduðu þessi blágrýtishraun.
b^’rjuðu á eocene-tima og héldust gegnum oligocene og
fram i miocene, en þá hættu þau. Að lokum brauzfc
eld-leðja gegnum ótal sprungur og myndaði ganga þúsundum
saman alveg einsog á Islandi. Blágrýtisfjöllin á frlandi og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0321.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free