- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
315

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

315 Myndunarsaga Islands.



því síður froskar og önnur skriðdj’r. Landið fór nú mjög
að líkjast þvi sem það er nú. Skeljar i malarkömbum
nyrðra og fauskar i mýrum á útkjálkum benda til þess, að
loftslag hafi nokkru eftir isöldu verið dálitið heitara en nú.
A landnámstið hafa skógar náð yfir flest láglendi, dali og
hliðar, þó voru þeir hvergi að mun stórvaxnari en þeir
skógar, sem nú eru. Sauðfjárbeit, skógarbrennur, kolagjörð

r

og hrisrif hafa mjög eytt skógum á Islandi. Frá þvi á
ís-öldu hafa orðið miklar breytingar, iijótin i
móbergshéruð-unura hafa skorið sér dali og gljúfur og breytt farvegum
sinum á ymsan hátt, mikil hraunflóð hafa hvað eftir annað
hulið stór héruð, árburður og framakstur jökla heíir breytt
miklu, fh’ðir hafa horfið á suðurströndu og land viða aukist
út á við, en sumstaðar hefir sjór gengið á land. Sandrok
hefir viða nagað fjöll og kletta, en myndað móhellu
sum-staðar; hafa við það i sumum héruðum orðið miklar
breyt-ingar á landslagi. Yfirleitt starfa náttúruöflin stöðugt að
breytingu landsins, ár og jöklar rifa niður, en eldgosin
byggja upp.

XI. Steinaríkið.

I samanburði við mörg önnur fjallalönd er Island mjög
fátækt af steinefnum og málmum, og er það eðlileg
aíieið-ing af jarðmyndun landsins. Málmefni og dýr steinefni eru
aðallega bundin við forngrýti það, sem kemur fram i
stór-um fjallgörðum meginlanda, en ísland er alt af ungum
uppruna, einsog fyr hefir verið lýst, og hvergi hafa þar
fundist jarðmyndanir, sem eru eldri en »tertieri« tíminn.
Par með er þó ekki loku skotið fyrir, að eitthvað kunni
að finnast af dýrum málmum í uppskotnum göngum eða á

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0327.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free