- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
317

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Steinaríki.

817

chabasít (meö afbrigði fakolit), desmin (stilbit), apofyllít og
heulandit, eitthvað af þeim má finna nærri í hverri
fjalls-hlíð á Islandi. Sjaldgæfari eru skolecit (mesolit, natrolit,
mesotyp), laumontit, fillipsít (christianit), analcim, levyn,
gmelinit, harmotóm, thomsonit, okenit, epistilbit (og
para-stilbit, sem er náskj’lt því), og ennfremur xylochlór (skylt
apofyllit), sem fundist hefir i steingjörvum trjábútum við
Hallbjarnarstaðakamb1). Skj’ld geislasteinum er grænjörð
(Grunerde), græn skán innan i holum blágrýtis og oft lika
samanofin við umbreytt móberg, hún er tilorðin við
sundur-liðun ágits og hornblende. Langstærstir og fegurstir
kryst-allar af jmsum tegundum geislasteina hafa fundist nærri
Teigarhorni við Djúpavog og hefir allmiklu af þeim verið
safnað handa erlendum steinasöfnum. Auk þess eru margar
tegundir geislasteina nærri Pyrli við Hvalfjörð, við Hvamm
i Norðurárdal, við Eskifjörð, Berufjörð og Fáskrúðsfjörð, í
Tindastól, nærri Yarðgjá við Eyjafjörð og á mörgum
öðr-um stöðum víðsvegar um land.

Kvars-steinar með ymsri gerð og útliti eru algengir á
Islandi, sumir krystallaðir og sumir ekki. Bergkrystall
er sá kvars kallaður. sem er i fögrum og tærum
krystöll-um, eru sumir þeirra stórir, 3—5 þuml. eða jafnvel meir.
Stundum er kisillinn, aðalefnið í kvarsinum, runninn saman
i smábungur eins og klakadröngla eða svellbungur og
heita stemarnir þá kalcedónar, þeir eru oftast hvitir,
en geta lika haft aðra liti eða litblæi, gula, bláa eða rauða.
Einna fegurstir og stærstir kalcedónar eru i fjallinu Grákolli
upp af Breiðuvik i Reyðarfirði. Nokkur afbrigði af
kalce-dón, t. d. karneol og onyx, hafa fundist stöku sinnum og
má fægja suma þeirra og nota i skrautgripi. Þá eru ýmsar
tegundir af jaspis algengar, rauðar, mórauðar, grænar og
gular eða þá röndóttar, þá má lika nota i skrautgripi og
eins agat, sem stundum hefir fundist, það er
sambreysk-ingur af kalcedón, jaspis og fleiri afbrigðum af kvarsættinni.
Lausir kalcedónar og kvarsmolar eru vanalega kallaðir

Um myndun geislasteina. Sbr. LandfrætMssaga IV, bls. 151.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0329.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free