Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Hiti.
341
ekki eru til athuganir frá hærri stað en Möðrudal á Fjöll-
um, 1500 fet yfir sjó; þar er meðalhiti ársins -J-0.40, en á
Vestmannaeyjum 5.3. Meðalhiti sumarsins i Möðrudal er
8.4°, á Vestmannaeyjum 10.2°, en á vetrum er meðalhiti
Möðrudals -f-7.20, en Vestmannaeyja -4-1.2°. eða með öðrum
orðum veturinn er i Möðrudal meira en átta stigum kaldari.
Vestmannae^^jar hafa líka miklu mildari vetur en aðrir staðir
t
á Islandi. sem rannsakaðir hafa verið, meira en 2° heitari
en Reykjavik.
Suðurströndin er eðlilega heitasti partur landsins og
Vestmannaeyjar eru heitasti athugunarstaðurinn, þar er
ekki að meðaltali frost i neinum mánuði, en sumarhitinn
er þar tiltölulega ekki svo mikill. Meðalhiti ársins er í
Vestmannaeyjum 5.3°, á Ejarnanesi 3.7°, á Sandfelli i
Oræf-um 4°, á Eyrarbakka 3.6°, í Hafnarfirði 3.9°, i Reykjavík 4.2°.
Aftur á móti er meðalhiti ársins ekki nema 1—2° á
Norður-landi. Sunnan jökla á suðurströndu er talin veðurbliða meiri
en annarstaðar, einkum undir Eyjafjöllum, en þar koma oft
skaðræðis hvassviðri, sem stundum gera tjón. I
Skaftafells-sýslum þykir veðráttufar vfirleitt hagstæðara en i mörgum
öðrum sýslum. I Vestur-Skaftafellssýslu er vestanátt talin
bezt, fylgja henni oftast bliðviðri og með henni verður oft
autt og marþítt á vetrum. Sunnanátt fylgja á sumrum
þokur og mollur, en á vetrum drifur með éljum og
frost-linum snjó, norðanátt er oft liörð, en austanátt er talin
verst, hörð köst með rokveðrum og rigningum á sumrum
og kafaldsbyljum á vetrum með löngum skorpum,
land-norðurs- og austanveðrum fylgir líka sandfokið, sem víða
skemmir. I Fljótshverfi er oft veðursæld á vetrum, þvi i
landnorðanveðrum er hverfið i hló undir jöklinum, en
hvassviðri eru þar mikil á austan og rifa af snjó, svo þar
er sjaldan haglaust. Undir Eyjafjöllum er veðurblíða þegar
af jöklum stendur og eins i Fljótshlið og i Skaftártungu og
Siðu i vestanátt.
Það sést á töflu III (bls. 348—349) að sveitir hafa meira
fastalandsloftslag en strendurnar, yfirleitt heitara sumar, en
kaldari vetur, og svipað er þeim athugunarstöðum farið.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>