- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
354

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

354

Yeðráttuí’ar.

r

í Fjörðum. A Héraði er torfið í bæjarþökum oft hart og
graslaust og skrælnað, en í Fjörðum verða þökin fljótt
grasgróin. Suddaþoka með kuldanepju er mjög tið á
út-kjálkum, einkum þegar kafis er nærri, og eins við
Austur-land þar sem heitir og kaldir straumar mætast.

Urkoman er mjög mismunandi i ýmsum héruðum á
Is-landi, en viðast mest á haustum og vetrum, i Grimsey þó
mest sumar og haust. Við Suðurland og Suðausturland er
úrkoman mest, á Vestmannaeyjum 1320 millimetrar (50 þuml.)
að meðaltali á ári, á Berufirði 1166 mm. (44 þuml.); mest
hefir rignt á Vestmannaeyjum á einu ári, 1587 mm. eða
rúma 60 þumlunga. JPetta er svipuð regnhæð einsog á
vesturströndu Noregs á sama breiddarstigi, en sunnar á
Noregsströnd rignir ennþá meira, sumstaðar 80—85 þuml.
og þar fram yfir; aftur rignir austanfjalls i Noregi
sum-staðar ekki meira en 11 — 14 þuml. A vesturströndu
Skot-lands er 100—150 þuml. úrkoma á ári. A vesturströndu
Is-lands rignir minna en á Suðurlandi, i Stykkishólmi er
regn-hæðin 656 mm. (25 þuml.) og enn minni viða á Norðurlandi,
i Grimsey aðeins 345 mm. (13x/3 þuml.). I Danmörku er
meðaltal úrkomu um alt land 23^/2 þuml., mest á
Vestur-Jótlandi 26 þuml. í^ó úrkoman sé meiri, þá rignir og snjóar
ef til vill sumstaðar færri daga, en meira i einu, i
Stykkis-hólmi eru t. d. 207 úrkomudagar, en ekki nema 135 i Papey.
Mest hefir rignt á einu dægri á Berufirði l()9lf2 mm.
þuml), en hvergi annarstaðar eins mikið i einu, i Grimsey
mest 34 mm. (I1/3 þuml.). Pó hafa snöggar stórrigningar
stundum gert skaða með afskaplegum vatnavöxtum og
skriðuhlaupum. A seinni timum er kunnust
stórviðrisrign-ingin, sem kom 2. sept. 1886, þá féllu skriður viða um
Suður- og Vesturland, meðal annars úr Esju hjá Esjubergi,
og ár ólmuðust langt úr farvegum sinum. Arið 1639 er
getið um stórrigningu á góuþrælinn, sem stóð i 4 dægur
svo aldrei var upprof, og náði yfir flestar sveitir; hús og
hey manna spiltust stórkostlega og fénaðarhús og léleg
bæjarhús féllu á fjölda bæja, skriður af aur og leir skemdu
á ótal stöðum tún og engjar og margt færðist úr lagi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0366.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free