- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
362

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

362

Yeðráttuí’ar.

fer gegnum loftið, verður það mjög rafmagnað (II, bls. 103,
104). Pað hefir stundum borið við, að menn hafa orðið
fjrir eldingum, þegar á eldgosum stóð, þannig dó maður
og stúlka i Skaftártungu af eldingu, er Katla gaus 17551).
fó eldingar séu sjaldgæfar, hafa þær þó nokkrum sinnum
gert mein, kveikt i húsum eða brotið þau og orðið fólki að
bana og fénaði. 1592 er sagt, að þrumur hafi gengið svo
miklar að undrum gengdi2). 1634 »hljóp elding i lofthús
i Bræðratungu, sem Gisli lögmaður Hákonarson hafði gera
látið, og braut hirzlur og gjörði skaða til 50 hundraða.
Pað þótti mönnum þ á undarlegt, að hún kom hvergi nærri
krúsum né gleri, en spilti öllu þvi er málmkynjað var og
sterkast«3). 1650 gengu 19. júni miklar skruggur og voru
taldar yfir 304). 1658 »var eldgangur af lofti með
skrugg-um um allan Yatnsdal nokkra hrið um vorið, sást
eldgang-ur sá langt þaðan annarstaðar«5). 1690 braut reiðarslag
bæ á Austfjörðum, drap kú en lamaði konu6). 1694 voru
um máltiðartima á Breiðabólsstað i Fljótshlið taldar 40
reiðar-þrumur7). 1 699 á Ossabæ i Ölfusi sló þruma til dauðs 13
sauði og svifti af húsþakinu8). 17 12, daginn fyrir nýársdag,
gengu um vestursveitir ákafar skruggur allan daginn og
leið skamt á milli og eins alla nóttina til þess fullbjart var
á nýársdag. Smalarnir gátu varla hamið peninginn, hús og
bæir skulfu og um nóttina glossaði inn um öll hús af
eld-ganginum7). 1718 drap þruma að ætlun manna i hjáleigu
einni i Eyrarsveit stúlku og tvær kýr, en kerling ein varð
rænulaus8). 1741, sunnudaginn siðastan i góu, gerði á
Snæfellsnesi, i Dalasýslu og viðar stórviðris skaða-garð á
vestan-útsunnan með miklu brimi og gengu nóttina á undan

») Safn til sögu íslands IV, bls. 242, 250.

2) Annálar Björns á Skarðsá II, bls. 1.

3) Árbækur’ Espúlíns VI, bls. 68.

4) Fitjaannáll. Hdrs. J. S. 238, 4°.

5) Annálar Gunnlaugs Porsteinssonar. Lbs. 158, 4°.

6) Hestsannáll. Hdrs. J. S. 39, Fol.

7) Purkeyjarannáll. Hdrs. J. S., Fol. 159.

8) Fitjaannáll, Hestsannáll.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0374.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free