- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
405

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Lífsskilyrði jurta.

405

Jarðstönglarnir eru forðabúr, sem jurtin getur tekið til á
vorin, þegar hún fer að vaxa uppúr jörðunni; jarðsprotarnir
eru ílestir vel geymdir að vetrinum til niðri i moldinni, en
allmargar starar- og grastegundir standa þó uppúr á vetrum,
en gömul visin blöð hylja þá og hlifa hinum lifandi hlutum
plöntunnar.x) Sumar tegundir hafa þegar á haustin myndað
blóm, sem lifa i góðum hlifum allan veturinn og springa svo
út snemma á vorin (steinbrjótur, músareyra, gæsamatur,
vor-blóm o. fl.).

Pað fer mjög eftir árferði og legu héraða á landinu
hve snemma jurtir blómgast á vorin, til þess að fá vissu
um blómgunartimann þarf margra ára athuganir, sem enn
ekki eru til. A Suðurlandi blómgast fáeinar jurtir um lok
aprilmánaðar, helzt steinbrjótar og gæsamatur, en í byrjun
maimánaðar fara vanaleg holtablóm að springa út, fyrst
vorblóm, geldingalauf, ljónslappi, mariustakkur, lambablóm,
siðar hófsóley, hrafnaklukka, geldingahnappar, súrur o. fl.,
en seinast i mánuðinum koma sóleyjar og fíflar og svo
hvað af öðru. Meginþorri tegunda blómgast um alt land i
júni og júlí, þá er gróðurinn i mestu skrauti, en eðlilega
er blómgunartiminn eftir loftslagi mismunandi i ýmsum
landshlutum og vanalega seinni fyrir norðan og austan en
á Suðurlandi, og seinastur á útkjálkum. I hafisárum með
kuldanæðingum og isaþokum dregst blómgun jurta og allur
gróður verður aftur úr. I hlýindaköflum á vetrum kemur
fyrir að nokkrir einstaklingar af ýmsum tegundum blómgast;
sóleyjar og fiflar hafa sprungið út á þorra o. s. frv.2)

’) Nánar um þessi efni má lesa í ritgjörð Helga Jónssonar:
Yetr-arbúningur plantnanna (Tímarit Bókmentafélagsins XX, 1899, bls.
1—20). Ennfremur Helgi Jónsson: Optegnelser fra Vaar- og
Vinter-Exkursioner i 0st-lsland (Botanisk Tidsskrift XIX. 1895, bls. 273-294)
og Vaar- og Hest-Exkursioner i Island 1897 (Bot. Tidsskr. XXI, 1898,
bls. 349—364). í öllum þessum ritgjörðum er mikill fróðleikur um
jurtalíf Islands.

8) Um blómgunartíma jurta sjá H.J.: Vaar- og Vinter-Exkursioner
i 0st-lsland, bls. 274—75, 292—94, og Grönlund og P. Th. í
Karakteri-stik af Plantevæxten paa Island, bls. 17—18.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0417.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free