- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
424

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

424

Jurtaríkið.

ast þýfður og leirblendinn; birkikjarr og einstakar hrislur
vaxa lika oft i urðum og utan i klettum, stundum er
jarð-vegurinn mýrlendur á köflum. Fjárbeitin heldur skógunum
niðri og gerir þá kyrkingslega. A vetrum, þegar snjór
liggur yfir, bita kindurnar knappana, sem upp standa, svo
aðeins þær greinar geta vaxið, er liggja fast við jörðu, svo
bæði þetta og snjóþyngslin gerir hríslurnar jarðlægar og
kræklóttar. Pegar nýgræðingurinn, sem upp úr snjónum
stendur, er i nógu stórum hrisbungum, getur féð aðeins náð
i yztu angana, en miðhrislan getur þó vaxið og orðið há,
en þetta verður sjaldnar, þvi að féð bítur oftast brumið
jafnskjótt sem það hefur sig nokkuð yfir jörðina. Stundum
bita kindurnar börkinn af hrislunum, sem uppúr snjónum
standa, inn i við, svo þær drepast. Margir skógar hafa ’
verið gjöreyddir á örstuttum tima af ofmikilli fjárbeit, og
enn meiri usla gera geitur i skógum, en þær eru viðast
fáar. Jurtafélög þau, sem halda sig i skógunum, á
skógar-botni og i rjóðrum, eru mismunandi, þó oftast lynggróður
af ýmsu tagi, smáviðir og grastegundir. Innan um vaxa
ýmsar blómjurtir, sem i brekkum gróa, t. d. blásóley,
loka-sjóðsbróðir, fíflar, sóleyjar, mjaðurt, mariustakkar, ljónslappi,
rjúpnalyng, geitnahvönn o. m. fL; viða eru ýmsar
burkna-tegundir i skógum. Einstöku reynihrislur eru innan um
suma birkiskóga og gulviðisrunnar. Þar sem skógur eyðist,
hverfur gróður þessi fljótt, því nú vantar skjól og hlýju;
vindurinn nær sér niðri og etur sig inn i hinar leirblöndnu
jurtaþúfur, rifur þær í sundur og notar efnið, dust og sand,
til nýrra áhlaupa, svo uppblásturinn vex ár frá ári, þangað
til alt er þursleikt niður i möl, urð eða klöpp.

Innan um birkiskógana vaxa viða reynitré og víðirunnar.
Reynirinn (Sorbus aucuparia) er fagurt tré, getur orðið 20
—30 fet á hæð; hann vex viða um land en myndar hvergi
skóga, trén og hrislurnar eru oftast einstakar eða fáar saman
innan um birkikjarr eða þá einstakar i urðum og gljúfrum.
Sumstaðar hefir reynir verið plantaður til prýðis við hús
og bæi (Reykjavik, Akureyri, Skriða i Hörgárdal og víðar);
reynitrén hafa oft fengið að vera í friði, þar sem önnur

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0436.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free