- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
427

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Rostungar.

427

Dreifðar leifar af birkiskógum eru enn til vibsvegar
um land, nema á svæðinu frá Eyjafirði vestur að
Isafjarð-ardjúpi. þar hefir skógunum alveg verið útrýmt; skógarnir
haldast helzt þar sem hlé er í dölum og undir fjallshliðum
sem vita mót sólu. Utbreiðsla birkisins í ýmsum héruðum er
enn ekki nægilega rannsökuð, en það verður þó að telja
Is-land til birkibeltisins. Hinir nyrztu útkjálkar hafa að öllum
likindum verið skóglausir á landnámstíð einsog nú, en nokkru
eftir isöldu hljóta þar að hafa vaxið nokkur skógarkjörr, það
sést af fauskum i mýrum; loftslag var þá nokkuð heitara en nú,
einsog skeljar i fornum malarkömbum sýna. Hæð kjarranna og
skóganna yfir sjó er ýmisleg og hagar sér eðlilega nokkuð eftir
hæð snælinunnar i hverju héraði. Hin eðlilegu takmörk
birki-gróðursins er viða örðugt að sjá. sakir eýðileggingar þeirrar,
er menn og sauðir hafa valdið; einstöku birkikræklur og
lágvaxnir skógarblettir éru mjög dreifðir og^ ná sumstaðar
töluvert hærra én hinir stærri skógar. Af stórskógunum er
Hallormstað.askógur um 250 fet yfir sjó, Fnjóskadalskógur
nálægt 600 fet.: Bæjarstaðaskógur 7—800 fet og liggur hann
hæst hinna ’stærri raftskóga. HæstvVliggja birkiskógar i
Þingeyjársýslu við Mývatn. þar.er birkikjarr á Vindbelg og
Dalfjalli 1700 fet ’yfir sjó ; mikill skógur hefir lika til forna
verið á Króksdal upp af Bárðardal, hann er nú eyddur, en

r

hefur að minnst’a kosti náð 17— Í800 fet yfir sævarmál. A
Suðurlandi ganga skógarnir hvergi eins hátt. Upp af
Suð-urlandsundirléndi eru viða skógar á takmörkum hálendis i
dölum og hliðum. Laugardalsskógar liggja á 300—800 feta

r

hæð, en áframhald þeirra upp með Uthlíðarhrauni nær að
1200 fetum; efstu skógleifar upp af Haukadal munu vera á
1000 feta hæð yfir sjó; skógar i Þórsmörk liggja á 700—1000
feta hæð og Núpsstaðaskógar 400 — 1000 fet yfir sjó. Þessar
skógarspildur eru hæstar á Suðurlandi, en önnur skógarlönd
liggja lægra, þó hvergi mjög nærri sjó. Tungufells- og
Skriðufellsskógar liggja á 550—650 feta hæð, Þingvallaskógar
350—650 fet, Búrfellsskógar 7—800 fet, Skaftártunguskógar
300—500 fet, Hafursev 300—600 fet o. s. frv. Á
Vest-fjörðum er skógahæðin lítt kunn, en kemst þar víst óviða

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0439.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free