- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
433

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Rostungar.

433

suðvestan til, við veginn út frá bænum, heitir Gatnaskógur,

liann er mjög stórvaxinn, allur þorri trjánna er þar um 20

fet á hæð, en hin hæstu 28—30 fet og stofnarnir 24—28

þuml. að ummáli; trén eru gisin og gömul en ungviðið er

kræklótt og skemt af kindabeit. Suðurskógurinn skiftist í

marga parta með ýmsum örnefnum og heita helztu skógar-

svæðin Atlavik, Mörkin og Asarnir. I Atlavík eru mörg tré

15—20 feta há, hin hæstu 25—26 fet í grýttri brekku niður

t

’undir fijóti; i Mörkinni eru 18—25 feta há tré og i Asunum
eru nokkur birkitré alt að 30 feta há. I Suðurskóginum
er þykkri jarðvegur en i Norðurskóginum, sambland af leir,
sandi og möl.1) Kjarrskógar allmiklir eru við Egilsstaði og
Eyjólfsstaði, en fram undir lok 18. aldar hafa víðáttumiklir
skógar verið á Yöllum, i Fellum og i Eiðaþinghá.
Fljóts-dalur hefir allur verið skógi vaxinn og nokkrar skógarleifar
eru þar enn á fáum jörðum, einkum á Hrafnkelsstöðum;
Ranaskógur var einna nafnkunnastur, hann var fagur og
stórvaxinn, en var eyðilagður seint á 19. öld.

A Jökuldal hafa skógar verið til forna einsog örnefni
bera með sér, en nú eru þeir alveg horfnir. Norðaustur
kjálki landsins frá Yopnafirði til Axarfjarðar er lika
skóg-laus og eins fjallasveitirnar, þó þar sé dálitið viðirkjarr á
stöku stað. I Axarfirði eru allviðáttumiklir skógar
eink-um nærri Skinnastöðum. Hálsarnir milli Ferjubakka,
Skinna-staða og Hafrafellstungu eru allir vaxnir birki og viði;
gul-viðirinn er svo áfjáður og þroskamikill, að hann nær heiru
að túngörðum og sumstaðar eru jafnvel gulviðisskellur í lítt
ræktuðum túnum; gulviðirrunnarnir eru viða
mannhæðar-háir og jafnvel hærri. I Asbyrgi er fallegur skógur við
tjörn inst i hamragirðingunni, trén eru þar 10—15 fet á
hæð, en mörg eru æði kræklótt; allur botninn á jarðfallinu
hefir áður verið skógivaxinn, en skógurinn hefir verið hlífð-

Um Hallormsstaðaskóg: Sig. Gunnarssoii í Norðanfara XI, 1872.
í. Th„ Andvari IX, 1883, bls. 49-51; XXI, 1896. bls. 9-10. Sæm.
Eyjólfsson, Búnaðarrit VIII, 1894, bls. 16—28. Helgi Jónsson, Botan.
Tidsskr. XX, 1895, bls. 25—35. Einar Helgason, Búnaðarrit XV, 1901,
bls. 76-80. C. E. Flensborg, Búnaðarrit XVI, 1902, bls. 206-209.

28

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0445.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free