- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
455

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hvalir.

455

apríl og stundum dálítiö seinna, tóan gytur eftir 9 vikur
og eignast oftast 3—5 yrðlinga, stundum fleiri. í*egar tóur
eiga yrðlinga á grenjum, eru þær mjög áfjáðar, ráðast þá
stundum á sauði.1) en þora sjaldan að leggja i hrúta. Tóur
eru frægar fyrir kænsku sina og varkárni og ganga margar
sögur af þeim, sannar og ósannar. Bændur á Islandi hafa
frá því á landnámstið átt i sífeldri baráttu við tóuna, sem
viða hefir gert sauðfjárræktinni stórkostlegt tjón. Menn
eyða refum á ýmsan hátt, helzt með skotum á skothúsum
eða á grenjum og svo með eitrun, kranzaugum og öðru
eitri; fyrrum notuðu menn mikið dýraboga og refagildrur,
sumstaðar tekst að bræla greni, en óvíða er það hægt í
hraunum og urðum.2) I alþingissamþykt um
melrakka-veiðar 1295 var ákveðið,3) »at hverr sá maðr, sem hann á
6 sauði at vetri í sinni ábyrgð skal taka einn melrakka
gamlan eða tvo unga á 12 mánuðum eða greiða 2 álnir i
mat fyrir fardaga«. Þetta mun upphaf refatolla eða
dýra-tolla, sem siðan hafa verið goldnir; fyrrum hafa lika verið
borguð verðlaun fyrir refadráp. Styrjöldin við tóurnar
kostar mikið fé, kostnaður sveitasjóða til refaveiða var árið
1907—8 8670 kr. og hefir jafnaðarlega verið 7—9 þúsund
krónur árlega seinustu 30 árin. I Norður- og Austuramti
þektust 1902 2083 greni, og engu færri munu vera til i
Suður- og Vesturamti, liklega fieiri, en þaðan vantar skýrslur.
A árunum 1898—1902 voru i Norður- og Austuramti
sam-tals unnin 582 fullorðin dýr og drepnir 1047 yrðlingar, alls
fargað 1629 tóum.4)

x) N. Mohr getur þess (Isl. Naturhistorie 1786, bls. 6) að ein
göm-ul tóa hafi á Bustarfelli í Yopnafirði á 3 árum sálgað 148 gömlum
sauðum.

r

2) Eggert Olafsson (Reise, bls. 217> getur um verkfæri, sem notað
var á 18. öld og kallað „dýrahnöttur", með járngöddum í allar áttir,
var látinn í kjötbita og snæri í, svo tóurnar voru dregnar einsog
fiskar.

3) Dipl. Isl. II, bls. 299- 300.

4) Um refaveiðar hefir margt verið ritað á íslenzku og mun
þetta vera hið helzta: Pórður Porkelsson: Um refaveiðar.
(Félags-ritin gömlu XII, 1792, bls. 227—239). Refagildrur. (Atli 1783, bls.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0467.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free