Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
472
Spendvr.
Selir af ýmsum tegundum eru algengir við strendur
íslands, sumir lifa hér að staðaldri. einsog landselurina og
útselurinn, aðrir eru aðkomudýr norðan úr höfum; þeir
komu áður i stórhópum til landsins, en er nú mjög farið
að fækka. Selirnir eru einsog önnur dýr vottur þess, að
Island er á takmörkum heimskautslanda; þeir selir, sem
fastan bústað hafa á Islandi, eru aðallega ættaðir að
sunn-an og austan, lifa i hinu norðlæga Atlantshafi, en
farsel-irnir koma norðan úr Heimskautshafi, i stærstum hópum
þegar mikil isár eru.
Landselurinn (Phoca vitulina) er lika kallaður
iátur-selur eða vorselur; hann er ljósgrár að neðan, dekkri að
ofan með mörgum dökkum dilum, 4—6 fet á lengd.
Land-selurinn er algengur kringum alt Island og kæpir á vorin
á skerjum við ströndina, hann er algengur við strendur
hins norðlæga Atlantshafs og eins á Grænlandi sunnantil,
norður að Upernivik að vestanverðu, norður að Angmagsalik
að austan; hann er ekki óalgengur fram með ströndum
Danmerkur og Noregs og fer iun i Eystrasalt sunnanvert.
Landselurinn heldur sig á Isiandi jafnan nærri landi, helzt
þar sem skerjótt er og við árósa, lónamynni eða á eyrum
og flúðum fram með ströndu, hann lifir á þyrsklingi, lúðum
og hrognkelsum, en þó langmest á laxi og silungi, þar sem
þess er kostur. Selur þessi fer langt upp eftir ánum, þegar
hann er að elta laxa og silunga.*) I Pjórsá ganga selir
upp að Urriðafossi, i Hvitá i Borgarfirði upp að Kláffossi
og lika langt upp eftir Olfusá og í Sogi að fossum, i
Hér-aðsvötnum nyrðra fara þeir upp að Flugumýri o. s. frv.
Láturselir halda sig oft í stórum árósum, t. d. i Pjórsá,
Kúðafljóti, Hvalsiki og liggja þar á eyrum. I Faxaflóa
innanverðum er landselur algengur á svæðinu milli
Akra-ness og Búða, einna mest vestantil á Mýrum; þá er hann
’) tað hefir borið við, að selir hafa vilst upp með ám, langt upp
í land. I’annig var selur unninn uppi í Yatnsdal fyrir ofan
Gríms-tungu haustið 1861, hafði að ætlun manna vilst upp úr Hópinu, upp
Gljúfurá og síðan skriðið yfir hálsinn og upp Vatnsdal. (Islendingur
II, 1862, bls. 159).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>