- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
504

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

504

Fuglar.

dæld og verpa þar án þess að smíða nokkuð eiginlegt
hreiður; andirnar reita þó af sér fiður og dún til þess að
veita eggjunum hlvju. Lundar, skrofur og drúðar grafa
langar holur niður i gljúpan jarðveg og verpa þar á bera
jörð. Allmargir islenzkir fuglar gera ekkert til að laga
varpstaðinn, verpa i grjóti, innan um urð og kletta, eða i
náttúrlegar lægðir i sandi, mýrum eða móum. Meðal siikra
fugla má telja teistur og langviur, kriur og tjalda, lóur og
spóa og marga fleiri.

Eggjatala islenzkra fugla er mjög misjöfn, sumir
sjó-fuglar eiga ekki nema eitt egg (súla, drúði, skrofa, fýlungi,
álka, haftirðill, stuttnefja, langnefja, lundi), sumir tvö
(heim-brimi, lómur, teista, kjóar, rita, kria); arnir verpa 2—3
eggj-um, fálkar 3—5, smirill og hrafn 4—5. Spörfuglar verpa
vanalega 5—6 eggjum, sumir 6—7, rjúpur eiga vanalega 6
—10 egg, stundum fleiri, alt að 14. Yaðfuglar eiga flestir
4 egg, en af sundfuglum eiga andirnir flest, 5—7, 6 —10
o. s. frv., sumar jafnvel 12—14. Alftareggin eru stærst allra
islenzkra eggja, en langviuegg og fýlungaegg eru stærst i
samanburði við móðurfuglinn; fýlunginn er ekki nema 19
þuml. á lengd, en egg hans er nærri eins stórt og
arnar-egg. Minst egg eiga músarrindlar, en tiltölulega minst egg

r

i samanburði við stærð fuglsins eiga skarfar og súlur.
Ut-ungunartimi islenzkra fugla er mjög mismunandi, frá 12—
40 dögum; sólskrikjur, þúfutitlingar, auðnutitlingar,
mariu-erlur, skógarþrestir og steindeplar þurfa ekki nema 12—14
daga, arnir 35 daga, svartfuglar og lundar 30—35 daga,
álftir 40 daga, hinir flestir 3—4 vikur.

I harðindum ber það við að fuglar falla hrönnum af
sulti og kulda; þess er t. d. getið i harðindum 1692 og 1699
að álftir og aði’ir sjófuglar hafi fundist hrönnum dauðir i
sjávarvíkum,1) stundum koma hópar af sjófuglum inn i land
i harðærum ög drepast þar. Veturinn 1880—81 komu
marg-ar þúsundir haftirðla inn yfir Norðurland og lágu þar
hel-frosnir i sköflum. Sjófuglar sumir villast annars oft, þegar

») Árb. Esp. VIII, bls. 35, 63.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0516.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free