- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
524

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

524

Rek.

þúsundir miljóna, að þeir gera sjóinn gruggugan á margra
milna svæði (»mor«). Mergð þessara plantna gerir þær
afarþýðingarmiklar i búskap náttúrunnar; þær eru
grund-völlur allrar d}’rafæðslu í sjónum, grúi af ósýnilegum
smá-dýrum lifir á þeim, önnur dálítið stærri á hinum smærri og
svo koll af kolli: smáfiskar, stórfiskar, þorskar, hákarlar og
hvalir, alt hvað af öðru, en þörungarnir skapa hin fyrstu
lífrænu efni, sem alt byggist á, og eru þvi hin neðsta
undirstaða lifsins i hafinu. Smáþörungar þessir lifa aðeins
ofantil i sjónum þar sem ljósið nær til, en hinir dauðu
lík-amir þeirra sökkva smátt og smátt og eru til næringar
fyrir dýraagnir i djúpinu. Jurtarekið hefir með
sundur-liðun kolasýrunnar lika mjög mikla þýðingu fyrir myndun
súrefnis i sjónum og skapar einnig á þann hátt lífsskilyrði
f\Trir smádýrin og fiskana. »Diatomeur« lifa aðallega nærri
ströndum, »peridineur« i rúmsjó; gró kisilþaranna sökkva
til botns og liggja þar i leðjunni unz kringumstæðurnar
eru hentugar; »peridineur« eru altaf svífandi i sjó. deyja
fiestar þegar kringumstæðurnar eru óhentugar, en nokkrir
einstaklingar verða eftir og þegar hitnar i veðri og sjó
fjölgar þeim ótrúlega fljótt með skiftingu. Pegar hitnar á
landi á vorin, fara jurtirnar, einsog kunnugt er, að brjótast
fram úr jarðveginum og þekja löndin grænum skrúða, við
það nærist grúi af smáum og stórum dýrategundum af
ýmsu eðli og á afrakstri jurtarikisins byggja mennirnir að
miklu leyti tilveru sina. Svipuð eru fyrirbrigðin i sjónum,
sem menn fyrst á seinustu árum eru farnir að skilja. Yið
vorhitann gróa eigi aðeins tún og akrar á landi, heldur
lika sjórinn, örsmá Kfsfræ framleiða ótölulegan grúa af
ósýnilegum plöntum, sem eru grundvöllur dýralifsins i
sjón-um, einsog grasarikið er grundvöllur dýralifsins á landi.

Dýrarekið (zooplankton) er miklu fjölbreyttara, þar eru
sýnishorn flestra hinna lægri dýraflokka og stærðarmunur
hinna einstöku rekdýra er mjög mikill. 011 rekdýr hafa
það sameiginlegt, að þau svífa í sjónum og berast með
vindi, bylgjum og straumum, hin sjálfráða hreyfing er sjald-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0536.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free