Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
532 Fiskai-.
glossus vulgaris) lifa helzfc á miklu dýpi, þegar þær eru
full-orðnar og kvað vera algengar á 200—400 faðma dýpi, en
þær ganga oft miklu grynnra og jafnvel upp undir land.
Hákarlinn (Somniosus microcephalus) er algengastur á 100—
300 faðma dýpi, en fer bæði dýpra og grynnra, sem
kunn-ugt er, skatan (Baja hatis) heldur sig oft á allmiklu dýpi,
oftast á 50—100 föðmum, en hefir veiðst á 300 föðmum;
tindabikkjur (Raja radiata) eru oft á grunnum sjó, en hafa
þó líka náðst á 150 faðma dýpi; blákjafta (Motella cimbria)
mun vera algengust á 60—80 faðma dýpi. Af hinum sjald
gæfari fiskum má nefna þessa: blálanga (Molva byrkelange)
er töluvert algeng sunnan við Island á 70—500 faðma dýpi.
Prjár tegundir rauðháfa (Centrophorus) lifa á sömu stöðvum
á 150—500 faðma dýpi og svartháfur (Spinax Gunneri) á
150—300 faðma dýpi nærri Yestmannaeyjum; tvær tegundir
af kyninu Fhycis hafa veiðst nærri Yestmannaeyjum og fyrir
sunnan Snæfellsnes á 60—140 faðma dýpi og gulllax
(Ar-gentina silus) er nokkuð algengur á 60—100 faðma dýpi
fyrir sunnan land; Coryphænoides rupestris hefir veiðst nærri
Yestmannaeyjum á 200—500 faðma dýpi, enda er það lika
djúphafsfiskur; vanalegur karfi (Sebastes marinus) er
almenn-ur við Suðurland á 2—300 faðma dýpi, en veiðist oftast á
40—80 föðmum; litli karfi (Sebastes viviparus) veiðist alloft
á 20—40 föðmum, en hefir lika fengist á 140 faðma dýpi
o. s. frv. Sumir af fiskum þessum komast þvi alllangt niður
fyrir röndina á grunnsævispallinum, en þar fyrir neðan
tekur við annað dýralif og önnur fiskakyn, sem einkenna
úthafsdjúpið og koma sumar tegundir nærri íslandi og
veið-ast þaðan, einsog t. d. Haloporphyrus eques, sem er algengur
fiskur 6—7 mílur suður af Yestmannaeyjum á 3—500 faðma
dýpi. Fiskalífið i úthafsdjúpinu skiftist um hrygg þann,
sem tengir Island við Færeyjar neðansævar; beggja megin
við þenna hrygg er eigi aðeins mismunur á tegundum,
heldur líka á kynjum og ættum. Suðrænir fiskar eiga
heima í mardjúpinu fyrir sunnan hrygginn, en
heimskauts-blær er á tegundunum, sem lifa i djúpinu fyrir norðan
hrygginn og það jafnvel suður undir Skotland, litil eða
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>