Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sinokkliskar.
555
skeldýrum, einkum öðuskeljum, og bryður þær hæglega.
hann etur einnig kræklinga og kúfisk, hörpuskeljar,
báru-skeljar, igulker, krabba o. fl. Um hrygningu steinbitsins
vita menn lítið, gottiminn nær yfir mikinn hluta sumars
og liklega hrygnir hann á alldjúpum sjó. A Yestfjörðum er
steinbitur mikið veiddur og er þar viða aðalfiskæti manna,
oftast hertur, þó líka saltaður; bein og barðir
steinbíts-hausar eru gefnir kúm og kindum og roðið notað i skó.1)
Hlýri eða steinbitsbróðir (Anarrhichas minor) er töluvert al-
A. E. Brehm.
184. mjmd. Callionymus lyra.
gengur kriugum land, þó einkum i hinum kaldari sjó fyrir
norðan og austan; hlýrar halda sig dýpra en steinbiturinn,
vanalega á 58—80 föðmum og eru mikið óalgengari, en
veiðast þó við og við og eru helzt notaðir i beitu. 1794
er sagt, að svo mikill hlýri hafi fengist á Barðaströnd, að
300 komu á hvern bæ, og árið eftir rak mikla mergð af
honum á Eauðasandi.2) Ulfsteinbitur (Anarrhichas latifrons)
er óætur og fremur sjaldgæfur, hann heldur sig djúpt,
sjaldan grjmnra en á 60 faðma dýpi og hefir veiðst á 440
föðmum. Skerjasteinbítur (Centronotvs gunéllus) er algengur
Sbr. P. Th. í Andvara XIII, 1887, bls. 114.
2) Árbækur Espólíns XI, bls. 71, 77.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>