Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
572
Fiskai-.
nokkuð minni, eru sjaldgæfari og hafa veiðsfc á sömu
stöðv-um á 200—400 faðma dýpi. Svartháfur (Spinax Gunneri)
hefir veiðst við Vestmannaeyjar og Garðskaga á 150—320
faðma dýpi.
Hákarlinn (Somniosus microcephalus)1) er mjög algengur
við Island, hann á eiginlega heima í djúpum sjó, á 100—•
300 föðmum og fer jafnvel mikið dýpra, 5—600 faðma, en
hann kemur líka á grunnsævi upp undir land og alveg upp
á yfirborð sævar þegar eitthvað ætilegt er á boðstólum.
Hákarlarnir eru stórir fiskar, 10 —16 fet og jafnvel lengri,
þeir eru ákafiega gráðugir og eta stóra fiska, þorsk,
grá-sleppur, smokkfisk, seli, allskonar hræ o. fL, fyrir þá er
vanalega beitt hrossakjöti og selspiki. Um æxlun hákarla
vita menn svo sem ekki neitt, þeir gjóta einhverstaðar
langt úti i hafi á djúpum sjó; hákarlsgot, sem á vetrum
koma upp að ströndum Islands, eru sjaldan minni en 5—6
fet á lengd. Hákarlarnir eru farfiskar og mjög fljótir i
ferðum; um jólaleyti ganga þeir vanalega hér upp að landi,
helzt gotin (hinir ungu hákarlar) og oft inn i firði, þeir hafa
jafnvel veiðst upp um is á Pollinum við Akureyri;
hákarl-arnir eru oft á rölti langar leiðir fram og til baka. Um
seinni hluta sumars, i ágústmánuði, hverfa þeir og draga
þá aftur út á djúpið, liklega til að gjóta.2) Hákarlar munu
vera algengastir i kalda sjónum norður og austur af Islandi
og eru helzt veiddir alllangt frá landi á 60—250 faðma dýpi,
norður af Vestfjörðum, við Grímsey og Kolbeinsey, út af
Melrakkasléttu alt til Jan Mayn, einnig út af
vesturströnd-um landsins milli Vestmannaeyja og Isafjarðardjúps.
Há-karlaveiðar hafa fyrrum mikið verið stundaðar við Island
’) Til í’orna var hákarlinn kallaður háskerbingur (Jónsbók 1904.
bls. 135), |)ó mun hafa verið efi á því nafni síðar, því 1634 er það
lög-tekið á alþingi. að nafnið háskerðingur skuli þýða sama sem hákarl.
(Alþingisbók 1634, nr. 10).
2) í Finnmörku er sagt að hákarlinn fylgi þorskinum að landi og
frá, komi upp að ströndum í apríl, en fari í ágúst. J. Hjort:
Fiske-rier og Hvalfangst i det nordlige Norge, 1902, bls. 67—68.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>