- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
575

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Skordýr.

575

Skordýr eru tiltölulega fá á íslandi, bæöi vegna þess
að gröðurinn er litill, og vegna fjarlægðarinnar frá öðrum
löndum; skordýralífið er lika að mestu órannsakað enn,’)
svo að jafnvel algengar skordýrategundir, sem alþýða
þekk-ir og hefir gefið nöfn, eru enn þá óákvarðaðar visindalega.
Hinn eini visindamaður, sem hefir rannsakað skordýralíf
Is-lands á seinni tímum, er Pjóðverjinn 0. Staudinger, sem
ferðaðist um ísland sumarið 1856. Staudinger telur
skor-dýralif á Islandi fátæklegt og tilbreytingarlaust um land alt;
segist hann varla trua þvi að fieiri en 500 tegundir
skor-dýra muni finnast á Islandi þó vel væri leitað,2) og er það
mjög lítil tala fyrir jafnstórt land. Yfir höfuð segir hann,
að eðlilegt sé, að skordýrategundir séu færri á eyjum en á
fastalandspörtum jafnstórum, en á Islandi standi ennfremur
kuldi og skógarleysi skordýralífinu fyrir þrifum, svo muni
og öskufall við eldgos eyða miklum fjölda skordýra, en ef
tegundir deyja út, þá kemur ekkert i skarðið frá öðrum
löndum. Alls fann Staudinger og félagar hans 312 tegundir
og var meira en þriðjungur af þvi flugur. Liklega er
dá-litill mismunur á skordýralífinu fyrir sunnan og norðan, en
það er nærri ókannað enn. Peir Krtiper og Finsterwalder,
sem söfnuðu skordýrum fyrir Staudinger sama sumar á
Norðurlandi, fundu þar 7 bjöllutegundir, 3 mölflugur, eina
flugu og eina vesputegund, sem ekki fundust syðra. Það
er meðal annars einkennilegt fyrir skordýralif Islands, að
þar eru engin dagfiðrildi,3) enda þurfa þau sumarhita og
þola ekki rigningar. Staudinger segir, að hvassviðrin, kuldi
og rigningin á sumrum geri dagfiðrildum ómögulegt að lifa
á Islandi, þar eru þvi nær engir skógar til hlífðar og hinir

t m _ _
’) Um skordýrarannsóknir á Islandi sjá Landfræðissaga IV, bls.

220-223.

2) I Danmörku telja menn að til séu ytir 10,000 skordýrategundir.
A Grænlandi hafa fundist 372 tegundir, þar af 165 flugur, 26 bjöllur.
54 hymenoptera, 40 lepidoptera, 6 neuroptera. J. C. Nielsen í
Med-delelser om Grönland XXIX, 1909, bls. 369-378.

s) Vanessa cardui hefir náðst nokkrum sinnum, það er flækingur,
sem oft berst til fjarlægra landa.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0587.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free