- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
582

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

582

Krabbar.

mundsson fundið 21 fcegund i fjörum fyrir sunnan og vestan.
milli Mvrdals og Arnarfjarðar, en fyrir norðan og austan
ekki nema eina tegund á fám stöðum í fjörunum. en
fáein-ar af tegundum þessum eru þar þó lika til á nokkru dýpi,
10—30 föðmum.1)

Af krabbadýrum er urmull i sjónum kringum Island og
höfum vér áður getið þess. hve mikla þýðingu
smákrabb-arnir hafa fyrir fiskalifið og fiskiveiðar. Af stórum og
smáum krabbategundum hafa fjöldamargar fundist hátt og
lágt i sjónum. en sumar eru snikjudýr á fiskum eða á
öðr-um skepnum, en þekkingin er í þessari grein öll i molum.
svo vér vitum ekki hve margar tegundir eru til hér við land
og hvernig þeim er niðurskipað.2) Af algengum kröbbum
i fjörum og nærri ströndum. sem fólk þekkir, má nefna
kuðungakrabba. bogkrabba. margfætlur. marfiær.
kampa-lampa, marþvara, þanglýs, þanggeitur o. fl.. undir þessum
nöfnum dyljast mörg kyn og tegundir. Af marflóm kvað
vera yfir 20 tegundir við Island og hefir ein tegund þeirra
(Anonyx nugax) ákaflega lagst á netafisk i Faxaflóa og gert
mikinn skaða, hún er algeng kringum alt lancl, á heima um
norðurhöf suður að Hjaltlandi. á öllu dýpi frá fjöruborði
niður að 650 föðmum.3) Norskur humar (Neplirops
norvegi-cus), góður átu, er mjög algengur fyrir sunnan land,
eink-um kringum Vestmannaeyjar á 60—120 faðma dýpi. Par er
líka og við Austurland mikið af ætum marþvörum
(Panda-lus Bonnieri).4) Af flokki jafnfættra krabba (Isopoda) eru
ýmsar tegundir i sjónum við Island. t. d. þanglýs og
óska-birnir, snikjudýr á fiskum. Undir þann flokk heyrir lika
viðætan (Limnoria lignorum), það er örsmátt krabbadýr, sem
nagar holur i tré og hefir gert stórskemdir á bryggjum i

*) Vidensk.- Meddel. fra Naturh. Forening 1902, bls. 71—72.
-) Sbr. H. J. Hansen: Crustacea malacostraca.
Clngolf-Expeditio-neu, III, 1908, 4°). Þar er upptalning og lýsing allmargra krabbadýra
við ísland. Landfræðissaga IV. bls. 227, 228.

8) Bjarni Scemundsson í Andvara 1909, bls. 148—153.
*) J. Schmidt: Fiskeriundersögelser 1903. bls. 27. Andvari 1900.
bls. 47.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0594.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free