Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
586
Sinokkfiskar.
á krabbaiium, var 14 álnir á lengd frá höfði og fram á enda.
Smokkurinn var 2 þuml. á þvkt, þar sem hann var þykstur,
en tæpur þumlungur þar sem hann var þynstur á pörtum«.
»Lifi’in var að mæli 2 fimm potta kútar, mórauð að liU.1)
Stór smokkfiskur náðist á Hrútafirði 1890 og annar á
Eyja-firði 1896; hinn siðarnefndi smokkfiskur var með lengstu
örmum hér um bil 11 álnir á lengd, búkurinn sjálfur 2^/s
alin og tveir löngu armarnir 81 2 alin, styttri armarnir 21 2
alin.2) Smokkfiska þessa hafa menn kallað Architeuthis, en
liklega eru til af þeim jmsar tegundir og sumar hafa sézt
suður i höfum enn stærri.
Hátt og lágt i sjónum við Island er fjöldi af skeldýrum
af ýmsu tægi. Samanhangandi lýsing á islenzkum lindýrum
eða skrá yfir þau hefir ekki komið i ljós siðan 0. Mörch
1868 reit um þenna dýrafiokk3) og hefir þó margt fundist
siðan. mörgu verið safnað i fjörum og sævarbotni á ýmsu
dýpi. Areiðanlega vissu vantar enn um útbreiðslu flestra
tegunda við Isiand. bæði á grunnum og djúpum sjó, og þvi
er alls ekki hægt að gera grein fyrir hinu einstaka eða fá
samanhengi i hinar strjálu athuganir. Hér minnumst vér
aðeins á fáeinar skeldýrategundir sem mest ber á,
algeng-astar eru og flestir þekkja; ritun um útbreiðslu tegundanna
verður að biða betri tima.
0. Mörch telur 1868 157 tegundir lindýra við Island,
þar af eru 58 tegundir sækuðunga og 52 tegundir sæskelja,
en siðan hafa allmargar tegundir lind}’ra bæzt við. Hin
ýmsu kuðungakyn hafa flest engin fastákveðin íslenzk nöfn,
’) Norðanfari XtX, 1880, bls. 19. Sum skrímsli, sem-menn hafa
séð, hafa ef til vill verið stórir smokkfiskar. Sbr. lýsing á skrímsli í
Norðra III, 1855, bls. 80-81.
2) Skýrslur náttúrufræðisfélagsins 1890, bls. 8: 1896, bls. 10. Um
stóra smokkfiska í öðrum höfum hefir Benedikt Gröndal fróðlega ritað
í Tímariti Bókmf. XIV, 1893, bls. 119-134. B. Gr. getur þess, aö sög-
urnar um „rauðkembinga" séu líklega sprotnar af ýkjusögum sjó-
manna um stóra smokkfiska, sem þeir hafa séð, en þeir eru oft
rauðir; tilgáta þessi er allsennileg.
8) 0. A. L. Mörch: Faunula Molluscorum Islandiæ. Vid. Meddel.
fra Naturh, Foren. 1868, bls. 185-227.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>