- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
VII

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Formáli

VII

sem hana les, heldur sögulegt og landfræðislegt yfirlit yfir
landbúnað Islendinga. Aðalefni ritsins er búnaðarsaga og
lýsing á búnaðarhögum Islendinga á ýmsum öldum,
sérstak-lega á seinni hluta 19. aldar; þar við bætist yfirlit yfir
hinar helztu framfarir á 20. öld samkvæmt skýrslum þeim,
sem birtar hafa verið í bókum og tímaritum. Því miður
hefir höfundurinn ekki með eigiu augum getað athugað
breytingar þær, sem orðnar eru á sveitalífinu á þessari öld.
Að svo stöddu er einskis manns meðfæri, að rita fullkomna
búnaðarsögu Islands úr því nærri allar
undirbúningsrann-sóknir vantar. Hér hefir verið reynt að riða á vaðið, svo
geta aðrir siðar leiðrétt og bætt við. Hinir einstöku
bún-aðarþættir eru eðlilega ekki ritaðir svo til hlitar, að ekki
megi mörgu við bæta, en alstaðar er vísað til rita. svo
les-andinn getur leitab þangað, ef hann vill fá meiri fræðslu
um einstök atriði. Pað er mjög örðugt að semja
fullkom-lega nákvæma lýsingu á búnaðarástandinu eins og það er
nú, ef vel væri þyrfti höfundurinn að ferðast um alt land
til athugunar og samanburðar. og safna um leið
liagskýrsl-um um ýmsar greinir búnaðarins. Pað er einnig til mikils
baga, að hagfræði vor er enn svo stutt á veg komin. öll i
molum og á fyrri árum oft mjög óáreiðanleg. Um ýmsar
greinir búnaðarins vantar allar skýrslur.

Kaupmannahöfn 14. april 1919

Porvaldur Thoroddsen.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0013.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free