- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
1

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

A. Landbúnaður.

I. Ábúð landsins.

L Víöátta graslendis.

Almennu gróðrarfari hefir áður verið lýsfc í Lýsingu
íslands, 2. bindi. Sakir legu sinnar á hnettinum og vegna
veðráttufarsins er ísland eðlilega hrjóstrugt land með
litl-um jurtagróða; og þó er gróðurinn aðalskilyrðið fyrir hinum
helzta bjargræðisvegi íbúanna, landbúnaðinum. A
aðal-hálendinu þrifast aðeins fáir jurtaeinstaklingar á stangli.
og um stór svæði er þar alger eyðimörk. Samfeldur
gróður, graslendi, mýrar og kvistlendi, ná aðeins yfir lítinn
hluta af öllu fiatarmáli landsins, en hve víðátta hans er
mikil, er að svo stöddu ekki hægt að ákveða; mjög lítil
líkindi eru til þess, að samfeldur gróður nái yfir meira en
fimta hluta af öllu yfirborði landsins. Full þekking í þeirri
gx-ein fæst ekki fyrr en nákvæmlega er búið að mæla
landið alt. Pó graslendi og kvistlendi aðallega taki yfir
láglendi og dali, þá er þar þó hvergi nærri samfeld
gróðr-arbreiða alstaðar; innanum fjölmennar bygðir eru stór
svæði af gróðrarlitlum melum og söndum. holtum og
hraun-um með gisnum bersvæðisgróðri og mosaþembum.
Jarð-vegur og mold eru í mörgum sveitum aðeins i dreifðum
smáblettum hér og hvar, en holta og klettagróður þess
á milli.

Líti maður á uppdrætti herforingjaráðsins, sem
prent-aðir eru, þá gegnir furðu, hve fiatarmál graslendisins er
lítið; i sumum sveitum og heilum héruðum er samfeldi

1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0019.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free