Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
10
Ábúð landsins
Upp af Faxaflóa eru víða grösug undirlendi og langir
dalir upp frá þeim, af því leiðir, að bygðin nær lengra
inn í landið, þó langmest þéttbýli sé fyrir neðan 50—60
metra hæð. Í Mosfellssveit eru Þormóðsdalur (110 m.),
Miðdalur og Elliðakot (101 m.) hæstu bæir, en heiðabýli tvö
upp af þeirri sveit liggja þó töluvert hærra, Stardalur 180
m., Stíflisdalur 193 m.; suður undir Reykjanesfjallgarði
er Kolviðarhóll (262 m.), en það er fremur sæluhús en sér-
stakt býli. Kjósarbygðin liggur mestöll lágt, 30—60 m.,
en stöku dalabýli liggja nokkuð hærra (Mýdalur 140 m.,
Eilífsdalur 130 m., Írafell 140 m., Fremriháls 120 m.,Hæk-
ingsdalur 120 m.). Við Hvalfjörð og Akrafjall er öll bygð
með ströndu fram, og bygðin í Leirársveit liggur líka lágt
(10—60 m.), en Svínadalur þar uppaf nokkuð hærra, 70—90
m., Dragháls efsti bær 100 m. Borgarfjarðarundirlendið
liggur víða mjög nærri sævarmáli og það sumstaðar langt
upp eftir. Dalirnir hafa í þessu héraði skorist dýpra niður
en víðast annarstaðar, þannig liggur Vatnshorn í Skorra-
dal ekki nema 60 m. yfir sjó og meginið af Lundarreykja-
dal ekki nema 40—50 m., bæirnir standa þar þó svolítið
hærra, utan í hlíðunum; svipaður er Reykholtsdalur (30—50
m.), en Flókadalur er mikið hærri, enda ganga þangað
að-líðandi heiðar upp á hálendið með miklum graslendum og
mýraflákum, (Hæll 150 m., Hrísar 153 m.). Svipað hagar
til í Hálsasveit og Hvítársíðu, en hæðin er þó nokkuð
minni neðan til, yfirleitt 50—100 m.; en þaðan ganga bygðir
dalir upp eftir og í þeim ýmsir bæir, og hækkar bygðin
þar mikið. (Húsafell 141 m., Gilsbakki 175 m., Fljótstunga
232 m., Kalmannstunga 218 m.).
Mýraláglendið frá Borgarfirði og Hvítá vestur í Mikla-
holtshrepp er mjög lágt yfir sævarmáli neðan til, upp fyrir
miðju víða ekki meira en 10—20 m. yfir sjó, en svo smá-
hækkar, svo hæðin er orðin um 100 m. uppi við fjalla-
múlana, (Grímsstaðir 110 m., Svarfhóll 95 m., Skógar 100 m.).
Vestan við Hvítá skerast daladrög lengst inn frá þessu
láglendi, Stafholtstungur, Þverárhlíð og Norðurárdalur;
bygðin í Stafholtstungum og Þverárhlíð liggur mest öll
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>