- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
13

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Bæjaskipun

13

að hæð og flatarmáli, en auðvitað er sá hluti landsins. sem
fyrir ofan bygðir liggur, lika notaður sem hagalönd og
afróttir.

Fjarlægö bæja frá ströndu. Náttúruskilyrði ráða eigi
aðeins hæð b}rgða yfir sjó, heldur einnig fjarlœgð bœja frcí
strimdu, hún er mjög mismunandi í ýmsum landshlutum og

r

stendur einnig i sambandi við loftslag og landslag. A
Vest-fjörðum er hin bygða, grasivaxna ræma örmjó, oft ekki
nema nokkur hundruð faðmar á breidd; fast frá ströndu
rísa viðast hrjóstrugar og brattar fjallshliðar, og bæirnir
standa i hallandi fjallsfæti, þegar þeir ekki eru i
dala-skvompum eða dældum, sem óvíða skerast meira en 3—4
km. inn i fjöllin: sumstaðar er alls ekkert undirlendi. Hin
eina nokkurnvegin samanliangandi strandabygð er
Barða-ströndin, sem þó er aðeins 1—3 km. á breidd. Dalirnir á
Vestfjörðum eru flestir stuttir, insti bær i Langadal á
Langadalsströnd, Bakkasel, er 12 km. frá dalmynni en 8 km.
frá sjó, þvers yfir fjöllin; Efstidalur i Laugardal við Djúp
og Kleppstaðir i Staðardal við Steingrímsfjörð eru 10 km.
frá sjó; þetta nær bygðin lengst inn í landið á
YTestfjarða-skaganum. Svipuð er tilhögun bygðanna á allstórum
svæð-um á Austfjörðum, á útkjálkum nyrðra og yfirleitt á
blá-grýtisströndum, sem snúa út að hafi. en af þeim héruðum

r

hafa enn aðeins Vestfirðir verið mældir. A Snæfellsnesi
norðanverðu er bygðin örmjó, að sunnanverðu dálitið

r

breiðari, við Búðavik 3 km., i Staðarsveit 6—7 km. A
Reykjanesskaga er öll bygð á sævarbakka og nær mjög
sjaldan meira en 1 km. inn i land, þegar fráskilin eru býlin
Krisuvik, 4l/2 km. frá sjó, og Vigdisarvellir, 7 km. Þetta
eru nú útskæklarnir, en nokkuð öðru vísi hagar til á
megin-landinu viðast.

I Húnavatnssýslu eru efstu bygðir 30—40 km. frá sjó.
í Skagafirði og Eyjafirði rúma 50 km. 1 norðausturhluta
landsins eru bæir lengst frá ströndu. bygðin upp frá
Bárðar-dal er 80 km. frá Skjálfanda, Mývatnssveit 60 km.,
Möðru-dalur á Fjöllum 75 km. frá Vopnafirði, rúma 100 km. frá
Axarfirði og Þistilfirði, en bæir á Jökuldalsheiði 60—70 km.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0031.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free