- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
16

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

16

9

Abúö laudsius

sáu snemma, að það var góð lijálp fyrir liskimenn að hafa
grasn}rt sér til stuðnings. A fyrri tiinum sóttu stórliópar
útróðrarmanna úr fjarlægum sveitum til ýmsra verstaða.
lifðu þar i sjóbúðum á vertíðum, en fóru svo heim aftur,
bjuggu ekki í sjóþorpunum að staðaldri; úr þessu hefir
smátt og smátt töluvert dregið á seinni tímum við breyt-

r

ingu atvinnuveganna. A Reykjanesskaga eru langflestir
slíkir verstaðir eða fiskiþorp, alkunnar eru veiðistöðvar í
Þorlákshöfn. Selvogi og Grindavík sunnan á skaganum.
Garður, Leira, Njarðvikur, Yatnsleysuströnd og Hraun að
norðau, en yzt á nesinu eru hverfi þau, sem kölluð eru
Suðurnes og Hafnir. í>á eru einnig viðáttumikil þorp eða
hverfi á Alftanesi og Seltjarnarnesi, á Skipaskaga, i
Yest-mannaeyjum og á Stokkseyri og Eyrarbakka. Oftast eru
hverfi þessi mjóar og óreglulegar bæja- og liúsaraðir með
ströndu fram. víða með samanhangandi túnspildum á milli.
I öðrum landshlutum er tiltölulega minna um slík
fiski-þorp; þó dálitið brjTddi á þeim á Yestfjörðum og
Aust-tjörðum, þá eru þau þó hvergi eins mörg og stór einsog
við Faxaflóa. A Snæfellsnesi. undir Jökli. voru fyrrum
miklar verstöðvar og sótti þangað fjöldi vermanna úr
fjar-lægum héruðum; þar liafa myndast ýms sjómannaþorp, sem
enn haldast, t. d. Búðir. Stapi, Hellnar sunnan við
fjall-garðinn. Sandur, Rif, Olafsvik o. fl. utan og norðan við
Jökulinn. A Yestfjörðum eru Bolungarvik og Hnifsdalur
alkunnar veiðistöðvar og búðaþorp; og á seinni timum liafa
smáþorp fiskimanna myndast á allmörgum stöðum vestra,
nyrðra og eystra og eru sum orðin að kauptúnum.
Kaup-staða- og borgamyndun er tiltölulega nýtt fyrirbrigði i
sögu íslands og stendur i nánu sambandi við auknar
fiski-veiðar og verzlun. Þjóðin hefir nú á seinni árum ákaft streymt
til kaupstaðanna og mun þess nánar getið i kaflanum um
fólksfjölda.

Bæirnir voru þegar í öndverðu settir þar sem lientugast
var; þeir, sem fyrst námu land, tóku sér þær jarðir, sem
beztar voru að landkostum og hlunnindum; en smátt og
smátt bygðist alt, sem byggilegt var, svo alt land var full-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0034.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free