Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
48
Ábúð laudsins
en talan er þó eigi alveg viss. Nú voru margir aðrir
stór-fiskar af höfðingjastétt á 15. öld en þessir, þó þeir væru
ekki eins rikir, þannig er t. d. sagt um Auðuun rika
Saló-monsson, að hann hafi átt mestalla bóndaeign í Borgarfirði
og auk þess margar jarðir syðra.1) Eftir svartadauða var
alt jarðagóss á landinu komið i stórhrúgur, einstöku menn
höfðu erft fjölda jarða og notuðu sér örðugar
kringum-stæður annara til þess að komast yfir enn meira. Yið þetta
fækkaði sjálfseignarbændum stórkostlega og meginþorri
bænda hefur þvi eflaust verið orðnir leiguliðar á seinni
hluta 15. aldar. Hefur aldrei fyrr né siðar verið jafn mikill
munur á efnahag manna, fáeinir burgeisar i hverri sýslu
réðu öllu, en alþýðan mun yfirleitt hafa átt við örðug kjör
að búa; smábændur voru þá flestir leiguliðar á jörðunum
og áttu heldur ekki nema lítið af áhöfninni, kvikfénaður
þeirra var að miklu leyti leigufé. Hafði það snemma byrjað.
að smábændur lifðu við leigufénað. enda segir Jónsbók
(bls. 224) »nú af þvi at i þvísa landi þurfu margir við
r
leigufé at hjálpast«. A dögum Brands biskups
Sæmunds-sonar (1102 —1201) er getið um Steinólf nokkurn, sem bjó
á landi staðarins á Hólum »ok hafði þat mest sér til
atvinnu. er staðurinn átti, sem margir aðrir*.2) fó virðist
afkoma almennings enn hafa verið nokkurnvegin góð á 15.
öld, líklega mest vegna þess, að útgjöldin voru litil og
kröfurnar til lifsins fáar. Petta ástand með
stórefnamönn-um og fátækum almúga hélzt fram á 17. öld með nokkrum
breytingum. þá fór efnahag landsins, af ýmsum orsökum,
smátt og smátt að fara aftur og ástæðurnar urðu jafnari
við almenna afturför heildarinnar.
3. Jaröabyg-ging-.
Fornar ákvarðanir um bygging jcirða og
byggingarskil-mála liafa að miklu leyti haldist frá því i fornöld fram á
vora daga, þó hafa nokkrar breytingar orðið á ýmsu. fremur
») Safn til sögu íslands III, bls. 709.
’-) Biskupasugur I, bls. 209.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>