- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
33

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jarðabygging

38

vora reka vel og trúlega vakta og vakta láta og fá
viðu af þeim til jarðanna, skifta viðum og skipa til
jarð-anna, eftir þvi sem hann sér vel henta, en oss og vorri
kirkju er s.kaðaminsU.1) Liklega hafa biskupsstólarnir
út-vegað sér þann urmul af rekaitökum, sem þeir áttu,
með-fram til þess að geta staðið straum af húsaviðhaldi á
stólseignunum. I skrá um kúgildi á Hólastólseignum og
bygging jarðanna 1449 sést, að stóllinn hefur reynt að
koma húsaviðhalds-skyldunni á leiguliða, og sumar jarðir
eru bygðar með þvi skilyrði, að landseti annist húsagjörð.2)
Sumir létu landskuldargjald ganga upp í húsgjörðir, þannig
átti herra Eirikur Sveinbjarnarson að borga Lárentius
biskupi 12 hundruð eftir Flugumýri »lúkandi sumt i
húsa-bótum«.3) ?essi forna skylda landeiganda að leggja við til
húsa á leigujörðum hélzt fram yfir siðabót. Eftir að
kon-ungur hafði tekið undir sig eignir klaustranna. fór að bera
á því, að stjórninni þótti þung byrði að ábyrgjast
fyrn-ingu jarðhúsa og leggja við til þeirra, og í tilskipun 8. maí
1591 er ákveðið, að konungslandsetar skuli »bæta jarðirnar
með góðum húsum og túngörðum«, en ef þeir eigi gjöra
það, má byggja þeim út, en þeir missi það, er þeir hafa
bygt og sé refsað að auki. En ef þeir standa í skilum
með afgjaldið og halda við húsum, má eigi reka þá af
jörðinni. I tilskipunum 14. april 1607 og 21. apríl 1619 er
þetta endurtekið og landsetum lofað æfiábúð, ef þeir halda
við húsum og görðum á sæmilegan hátt, og eftir tilskipun
29. nóvember 1622 eiga ekkjur landseta að njóta sömu
réttinda, en þar er skýrt tekið fram og stranglega boðið,
»að bæði ekkjur og aðrir, er búa þar i landi, skuli sjálfir
útvega sér húsavið til þess að byggja og bæta hús siu og
jarðir, eftir þvi sem efni þeirra og ástæður landsins leyfa«.4)
Þessu var siðan fylgt á konungsjörðum, en flestir lands-

Dipl. isl. IV. bls. 547.

*) Dipl. isl. V. bls. 35—37.

3) Biskupasögur I, bls. 855.

4) Lovsamling for Island 1. bls. 126-127, 149-150, 182-183,
210-211.

3

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0051.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free