Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
42
J arðabygging
mismunancli í ýmsum héruðum og varla eins mikið einsog
síðar. í skrá um leigur af jörðum E,eykjaholtskirkju 1504
eru 20 hundraða jarðir leigðar fyrir eitt hundrað mest.
minst fyrir 10 aura í landskuld (S’/s—5°/o), en 6 kúgildi
fvlgja liverri.1) Af skrá Gisla biskups Jónssonar yfir jarðir
þær. sem lagðar voru til uppeldis prestum i Skálholtsstifti
1580, sést, hvað landskuldirnar þá hafa verið á reiki (1: 10.
1: 12, 1: 15, 1: 20) eða með öðrum orðum 5—10°/o. Lág
landskuld er þar oft bætt upp með mörgum kúgildum.2)
/
A seinni tímum hefir verið vanalegt, að eitt kúgildi fylgdi
hverjum 5 jarðarhundruðum, en i þessari skrá fylgir
vana-lega kúgildi hverjum 3—4 hundruðum, sumar jarðir eru þó
kúgildalausar. Eins er með jarðir Ogmundar biskups,
bygging þeirra hefir verið mjög mismunandi, borin saman
við fornt jarðamat og yfirleitt mjög lág, landskuldir viðast
2—5°/o. og kúgildatalan mjög á reiki.3) Alt þetta þarf
nánari rannsókn, þvi örðugt er að finna jarðarverðin í þá
daga með vissu, en mörg gögn eru fvrir hendi frá 15. og
16. öld. Páll Vídalin segir, að landskuldir hafi viða fallið
eftir stórubólu 1707. Páll lögmaður, sem var manna
fróð-astur i þeim efnum, segir, að þá (snemma á 18. öld) sé
hundraðslandskuld af 20 hdr. jörð (5°/o) viðast kölluð
lög-leiga á Suður- og Norðurlandi, en víða haldist vestra og
eystra hinar fornu landskuldir.4) Landskuldirnar á
jörð-um Ogmundar biskups á Yestfjörðum virðast þó eigi
sanna þetta.
Landskulda-upphæðin af öllu Islandi var reiknuð saman
1096 og var þá talin 33 þúsund dalir,5) en í hallærunum
um aldamótin og á miðri 18. öld féllu landskuldirnar mjög
og voru 1760 reiknaðar 18,811 rd. 76 sk.,6) enda höfðu þá
margar jarðir lagst í eyði. Landskuldir af sveitajörðum
\) Dipl. isl. VII, bls. 737.
s) Alþingisbækur I, bls. 421-422.
s) Sat’n til sögu íslands I, bls. 126—127.
*) Fornyrði lögbókar bls. 552
5) Árb. Esp. VIII, bls. 51.
6) G1. Félagsrit Y, bls. 81: VII, bls. 177.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>