- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
83

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jarðabækur og jarðamat

83

fegar Arni Magnússon var í jarðamatsstörfum austur i
Hreppum, var honum afhent skjal nokkurt, sem hafði að
geýma fornar reglur um það, hvernig virða skyldi fasteignir
til dýrleika og tii tiundar; átti Bergþór Hrafnsson
lögsögu-maður með 17 höfðingjam að hafa samþykt skjal þetta á
alþingi 1117; en skjalið ber það með sér, að það er falsbréf
mörgum öldum yngra, þvi það er fult af villum. Nú vita
menn, að Daði prestur Halldórsson í Steinsholti (1671 —1721)
hefur samið skjalið til að freista þeirra Arna Magnússonar
og Páls Yidalins, er þeir byrjuðu jarðamatsstarfið; en það
tókst eigi, þeir sáu strax, að skjalið var falsað. Samt hefur
Bergþórsstatúta haft mikil áhrif á jarðamat 19. aldar og
margir embættismenn og jafnvel fræðimenn hafa trúað
henni.1)

í »Bergþórsstatútu« er ákveðið að hvert kýreldis-tún
skuli vera 20 aurar (hundrað) i landi til tiundar, en engi
hvert, sem tvö kýreldi gjöri á jafnaðarári, varði 20 aura i
landi, og hagbeitarland, sem elur 3 málnytukúgildi á
sumrum. varði 20 aura o. s. frv. Evjar og eggver öll þau,
er gjöra með eggnámi og dúntaki tveggja hjóna fóstur á
jafnaðarári, svá árlengis sé, varði 60 aura i landi o. s. frv.2)
Aðalefuið er, að jarðirnar skuli meta eftir þeim peningi,
sem þær geta framfleytt i meðalári, með ýmsum fjarstæðum
um matning hlunninda o. fl. A 18. öld urðu þegar deilur
urn gildi þessarar skrár, Jón Arnason biskup varði hana
og Finnur Jónsson biskup mótmælti henni og sýndi í henni
margar villur.3) Pó héldu margir þvi fram, að þetta væri
hin réttasta aðferð við jarðamat, að meta eftir
kúgildafram-fleytingu, svo úr því varð nokkurskonar þjóðtrú sumstaðar^

Með konungsúrskurði 23. apríl 1845 var sett skattamálsnefnd,
er athuga skyldi alla skattalöggiöf íslands, í hpnni voru helztu og
æðstu embættismenn landsins; af nefndaráliti þeirra má ráða, að þeir
nafa trúað á Bergþórsstatútu. Sbr. Ný Félagsrit VII, bls. 50.

2) Bergþórssíatúta er prentuð í riti Halldórs Einarssonar: Om
Værdie-Beregning paa Landsvis og Tiende-Ydelsen i Island. Kbhavn
1833, bls. 165-175.

8) Sbr. Halldór Einarsson s. st. bls. 164 og Jón Sigurðs’son í
Safni til Sögu íslands II, bls. 22-23.

6-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0101.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free