Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Heygarðar
135
t
töðugarðar eða heygarðar.1) I heygörðuuum eru mörg
hey-stæði með geilum á milli, og eru heyiu þar borin upp i
háá stakka (eða hey) milli geilanna; hvert hey er vanalega
látið vera IV2 faðmur á breidd, en tvisvar eða þrisvar
sinn-um lengra og þrjár mannhæðir eða framt að þvi á hæð, ef
vel á að vera, hæst í miðju með ávalan hrygg. Þegar
heyið er reitt lieim, er altaf einn maður eða íleiri til að
taka á móti sátum, leysa úr og hlaða upp heyinu og troða
með fótunum, svo það verði þétt og fast. fegar búið er að
bera upp heyið. er það tyrft með torfi, löngum torfum
(hey-torfum), þær eru oftast 7—9 feta langar og 3 feta breiðar,2)
og svo er borið grjót ofan á svo ekki fjúki, en torfið
skar-að svo eigi drepi, en það er kallað að lykkjutyrfa, þegar
torfurnar eru ekki látnar ná saman, en látið vera tveggja
1
fingra bil milli þeirra.3) Olafur Stephensen segir: »Svo haga
allir góðir búmenn heytyrfingum, þeir láta rista heytorf
milli fardaga og Jónsmessu, hringa það i flagi, reiða siðan
út og breiða til þurks, en flytja heim til tófta og heygarða.
hvar þeir leggja það i bunka, svo eigi nái að vökna, þá
það er þurt orðið fyrir slátt; er þá ristu, þurki og
heim-llutningi torfsins aflokið fyrir heyannir, svo eigi þarf
ann-að að gjöra. en taka það úr bunkanum, þá tyrfa skal.« 4)
A hej-stæðin i görðum og tóftum lögðu menn fyrrum ofc
hris undir heyin, þótti það vel gefast, þá urðu engar
rekj-ur við gólfið.5) Hlöður munu hafa verið á flestum heldri
bæjum til forna, og er þeirra oft getið í sögunum, síðar fór
þeim að fækka, en þó munu menn um allar aldir allviða
hafa liaft smáhlöður við fjós, lambhús og nokkur sauðahús,
og ennfremur voru heytóftir þaklausar við fjós og fjárhús
víða um land og eru enn; eru þær sumstaðar kallaðar kuml.
l) Laxdæla 1895, bls. 256. kap. 84. Sturlnnga, Hvíkurútg. I, bls.
121; III, bls. 21. Sumstaðar voru til forna stakkgarðar á engjum. íjarri
bæjum. og sjást á stöku stað leifar þeirra.
s) Eggert Olafsson’s Rejse bls. 35.
3) Gömul Félagsrit VI, bls. 68.
4) s. st. VI, bls. 66.
5) Gömul Félag.’rit II, bls. 64-65.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>