- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
143

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Heykvaðir

143

á vora daga, að sumir hafa notað sór nej^ð kotunganna til
þess að leggja á þá heykvaðir. í^annig er þess getið. að
sýslumaður í Kjósar- og Gullbringusýslu hafði áskilið sér
40 töðuhesta afgjald af 10 hdr. jörð í Mosfellssveit.1)
Snemma lögðu klerkar heytolla á bændur. en ekki vita
menn glögt, hvenær þeir komust á eða undir hverju
yfir-skyni. Pað eru munnmæli, að allir þeir bændur, er grasnyt
höfðu, hafi i fornöld fallist á í sameiningu að fóðra reiðhest
sóknarprestsins, og af þvi hafi heygjaldið skapast.2) Siðar
breyttust he^’tollarnir i lambsfóður. A miðri 13. öld er fyrst
getið um heytolla, þannig á prestur á Okrum á Mýrum 1258
að hafa heytolla af 0 bæjum,3) og seinna á þeirri öld eru
þeir orðnir almenn álaga, ef trúa skal réttarbót Eiríks
kon-ungs Magnússonar 1295. í>a r segir: »Heytollur skal til reiðu
hið siðasta Maríumessu síðari á sumar. en sá er ei vill vitja
eður við taka, hafi engvan á því ári. Skulu þar i gjaldast
einar málbandsklyfjar af lambgæfu heyi eða tvær vættir af
töðu. Ef á vetur er goldið, sé lukt fyrir Ivyndilmessu.
Sek-ur þrim aurum sá, er ei vill gjalda.« 4) f*etta var
endurnýj-að með skipan Jóns biskups Sigurðssonar 1345 5) og statútu
Gyrðs biskups Ivarssonar 1359.6) Arið 1510 lét Stefán biskup
Jónsson dæma dóm um heytolla-gjald, og er þar úrskurðað.
að hver búandi maður, er grasnyt hefir, greiði presti þetta
gjald eða fóðri lamb, en ef hann þrjóskast, gjaldi tvöfalt og
þriggja aura sekt einsog til forna.7) Lambseldið var síðar
metið á 10 fiska. Allar þessar ákvarðanir virðast benda til
þess, að nokkur tregða hefir verið á að gjalda þenna toll.
Heygjöldin virðast framan af hafa verið nokkuð
mismun-andi i ýmsum sveitum; 1318 á prestur á fönglabakka að

’) fjóðólfur V, 1853, bls. 115.

2) Jón Pjetursson. Kirkjuréttur, 2. útg., Rvík 1890, bls. 189.

3) Dipl. isl. I. bls. 596.

4) Dipl. isl. II, bls. 292.

5) Dipl. isl. II, bls. 800. 824.

6) Dipl. isl. III, bls. 128-129. Sbr. Dipl. isl. VI, bls. 663-74.

7) Diþl. isl. VIII, bls. 306-308.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0161.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free