Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
166
Mýrar og engjar
meira en helminguriiin eftir af því, sem hægt væri að nota,
ruðningnum kasta menn ofan i næstu gröf, og þannig er
fyrirbygt, að nokkur maður seinna meir geti haft not af
þvi, sem eftir var. Pað er óvíða hér á landi, að
svörður-inn vaxi upp í sömu gröfunum einsog erlendis, þvi
ruðn-ingurinn, sem kastað er niður i þær, er oftast óhreinn af
leir eða sandi, og svo grautast sandurinn innan um alt
saman. sem annars er i reglulegum lögum i mýrum, sem
ekki hafa verið hreyfðar áður, alt verður einsog hræringur.
Eg hefi tekið eftir þessu i hinum gömlu gröfum, þar sem
menn hafa vilst ofan i þær, i bálkunum milli grafanna var
bezti svörður, en þegar kom út fyrir þá út i hinar gömlu
grafir, þá fanst ekki annað en tómur hræringur af
óbrúk-andi sverði. Þetta þótti mönnum undarlegt og gátu ekki
skilið i hvernig á þvi stóð, því þeir höfðu ekki tekið eftir,
að þeir höfðu einmitt farið í svarðargrafir fornmanna, en
það var heldur ekki svo auðvelt að aðgreina, þvi alt var
næstum orðið ^afnt á yfirfleti jarðarinnar, grafirnar og
mýr-in i kring. Pó þessi óregla á brúkun og meðferð
svarðar-mýranna eigi sér stað upp til sveita, sem þó hvorki ætti
að vera, né þarf að vera, þá er það nú sök sér, en það
versta af öllu er, að þessi sama aðferð er brúkuð á öllum
stöðum, eins þar sem þó mikið ríður á að bera sig
spar-legar að, t. a. m. þar sem kaupstaðir eru, enda í kringum
höfuðstaði landsins nl. Reykjavik og Akureyri, og þyrftu
menn þó að vera varkárari þar, þar sem svo mikið þarf
að brúka af sverði árlega, því svarðarmýrarnar eru þó ekki
óþrjótandi á hvorugum þessara staða, enda er nú búið að
eyðileggja mikið.« I timaritinu Plógur 1904 segir svo: 2)
sPað mun láta nærri, að úr gröf, sem er 40 feta löng, 10
feta breið, þar sem 4 pálstungur liggja niður af mó, fáist
Sveinn Sveinsson: Svarðarmýrar og eldiviður (Norðanfari XVIII,
1879, bla. 93—94, 105—106). Um slæman frágang á mótekju á Akranesi,
sjá Skýrslu Búnaðarf. 1895, Rvík 1896, bls. 75-76.
a) Plógur VI, 1904, bls. 1—3.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>