- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
182

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

182

Afréttir

in.1) Fjallafé var rekið saman i réttir einsog nú. í
Bjarnar-sögu Hítdælakappa er t. d. getið um réttir i Langavatnsdal,
i Pórarinsdal og í Hítardal ofanverðum.2) Petta með öðru
bendir til þess, að á söguöldinni liefir aðferðin við
fjár-rekstur á fjöll og leitir verið svipuð þvi, sem enn er tízka.
Búfjárhagar lieima fyrir voru þá oft girtir. og alloft voru
hlaðnir garðar fyrir dali, sem hafðir voru til uppreksturs
fyrir nautgripi, stóðhross, lömb eða geldfje;
landamerkja-og hagagarðar voru þá algengir, einsog fvrr var á drepið,
enda var ekki vanþörf á því, þar sem deilur út úr beit
bú-fjár og ágangi voru svo almennar. sem sjá má af sögunum;
enda voru afréttir þá viðast smærri og þrengri en nú. Um
ágang afréttarfjár á lönd manna eru nákvæmar ákvarðanir
i Grágás og Jónsbók.8)

Landnámsmenn námu eigi aðeins land á láglendinu og
í dölum. þeir slógu lika eign sinni á stór svæði af
hálend-inu. Pað er ekki sjáanlegt, að þeir hafi i fyrstu skilið neitt
eftir til almennings afnota til afrétta eða annars, hver
hugs-aði aðeins um sig. fað sést af frásögnum Landnámu um
hina fyrstu könnuu Kjalvegs, að þeir Hrosskell og Vjekell
helguðu sér land eins langt upp á öræfin einsog þrælar
þeirra komust,4) og Kalman i Kalmanstungu nam alt land
austur undir jökla, sem grös eru vaxin. Það eru þvi öll
likindi til þess, að margir afréttir hafi á landnámstið heyrt
undir einhver landnám, stór og smá. og enn gera vmsar
jarðir tilkall til þess að eiga stór llæmi af hálendinu,
þann-ig hefir Beykjahlið við Mývatn talið sér afrótti og öræfi alt
suður i Yatnajökul. I sögum og fornum lögum er hvergi
getið um almenningsafrétti fyrir lieilar sveitir og sýslufélög,
afróttirnir eru taldir eign einstakra manna. » fat er afrétt, er
tveir menn eigu saman eða fleiri, hversu mikit sem liver á í«.5)

>) Fljótsdælasaga, 1896, bls. 69.

2) Bjarnarsaga Hítdælakappa, 1898, bls. 73, 75.

3) Sbr. Lögfræðingur III, bls. 53-61.

4)’ Landuáma, Rvík 1891, bls. 53, 139-140.

5) Jónsbók bls. 177.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0200.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free