Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
224
+sautpeniiigur
stað, 1397 25 kyr í Odda. 17 í Stafholti, 30 á Melum í
Melasveit, 26 á Valþjófsstað o. s frv. A fjölda af
kirkju-setrum. og þeim sumum smáum. eru milli 10 og 20 kýr.
Kúatalan hefir viðast vaxið frá því á 13. öld, mjög óviða
minkað.
Xóg gögn eru til að sýna, að nautpeningsræktin hefir
verið i svipuðu horfi á 15. öld. og þarf ekki að telja mörg
dæmi. þó þau sóu nóg í Fornbrófasafninu. Kirkjur,
klaust-ur og biskupsstólar halda sama nautpeningsfjölda eða auka
hann, og þá fjölgar mjög stórbúum rikismanna, sem
rök-uðu saman erfðafó á manndauðaárunum. Arið 1408 eru á
Reynistað taldar 22 kýr og 7 kálfar,*29 uxar gamlir og 16
yngri naut,1) en 1446 liefir áhöfnin aukist mjög, þvi þá
standa heima á klaustrinu sjálfu 50 kúa, 30 kálfar, 10
kvigur veturgamlar, 14 tvævetra, 18 veturgömul naut geld
með graðungum. 15 naut þrevetur, 2 graðungar þrevetra.
67 uxar þriggja vetra og eldri.2) Petta verða samtals 206
uautgripir. 1429 voru á Möðruvallaklaustri 24 kýr, »allar
afgamlar«, 8 kálfar og 50 naut; 1446 á Munkaþverá heima
á staðnum 40 kýr, 17 kvígur. 17 kálfa og 65 naut. auk
þess tvö hundruð kúgildi á leigustöðum.5) Alkunn eru
stórbú Guðmundar Arasonar á Eej^khólum; eignir hans
voru dæmdar undir konung 1446, og bjó hann þá á
sex höfuðbólum, á Reykhólum, Kaldaðarnesi i
Bjarnar-firði, Núpi i Dýrafirði, Brjánslæk, Saurbæ á Rauðasandi
og Felli í Kollafirði, og voru alstaðar stórmannleg bú að
kvikfó og öllu lausafó. Undir hvert þessara höfuðbóla
heyrðu svo fjölda margar jarðir i umboðum. A hinum
fyrr greindu 6 höfuðbólum voru þá 192 kýr, 74 kálfar
og 215 naut, samtals 481 nautgripir. Flestar kýr voru
á Reykhólum og Saurbæ, 45 á hvorum bænum. en 42
á Núpi; 154 nautgripir voru á Reykhólum einum.4) Pegar
*) Dipl. isl. III. bls. 718.
2) Dipl. isl. IV, bls. 702.
3) Dipl. isl. IV, bls. 373, 700.
4) Dipl. isl. IV, bls. 683-694.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>