- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
270

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

270

Xautpeiiiiigsrækt

ung í eitt mál á suinri, þá hún er best, sú skal gera 6

fjórðunga smjörs. En sú er mjólkar fjórðung skal gjöra 12

fjórðunga«. Og ennfremur: »fað er kallað að mörk

smjörs skal gera leigufært kúgildi á dag í meðal haglendi.

En það er leigufært, sem kemst til 7 marka á sumri, þá

hún mjólkar sem best®.1) Á 18. öld voru gerðar ýmsar at-

huganir um það, hve mikið smjör fengist úr mjólkinni,

t

sórstaklega af hinum ágæta búmanni Olafi Stephensen,
stiftamtmanni.3) Hann telur meðalnyt kúa, sem fyrr var
getið. 1200 potta, og segist í rúm 30 ár hafa látið safna
smjöri undan kúm á 12 jörðum syðra útaf fyrir sig og
aldrei getað fengið yfir 5 fjórðunga og 10 merkur undan
kú um árið, þá bezt hefur látið. en oft og á flestum
stöð-um eigi náð fullum 5 fjórðungum. Bezta kýrin hans
mjólk-aði þó 1561 potta og úr henni fengust 190 merkur smjörs
(95 pund), en af annari. sem eins var með farið, fengust
aðeins 572 pottar mjólkur á ári og 32 pd. af smjöri á ári,
og sóst þar kúamunur. Olafur Stephensen neitar þvi ekki,
að i sumum hóruðum, þar sem gott er undir bú, muni
al-ment geta fengist um og 3-fir 6 fjórðungar að meðaltali.
Sira Jón Ormsson í Sauðlauksdal fókk af 4 kúm 17. maí
og 17. júni 1785 úr 76 mörkum mjólkur 5 l/s mörk smjörs3).
Björn Halldórsson segir konu sina »og aðrar forstöndugar
bústýrur hafa reynt, að af meðallagi kostugri mjólk fáist
10 pund smjörs eður fjórðungur úr 100 pottum«.4) Skúli
Magnússon fógeti vill ekki fallast á þetta, og segist hvergi
þekkja til á Islandi þar sem svo mikið smjör fáist úr
kúa-mjólk, enda mun þetta alt of hátt hjá sira Birni sem
með-altal. þó einstök ágætis kostakýr kynni að hafa svo feita
mjólk. Skúli fógeti setur meðalnyt kúa 1642 potta og eftir
reynslu hans fengust úr þeirri mjólk i Yiðey 97 pd.
smjörs á ári, en á Mosfelli i Mosfellssveit 109 2 pund.5)

’) Búalög. Rvík 1915, bls. 34, 60, 74, 79.

*) Gl. Félagsrit VI. bls. 77, 81.

3) Gl. Félagsrit VI. bls. 72.

4) Atli 1783, bls. 119-120. Sbr. Búnaðarrit XXVIII, bls. 68.

5) Gl. Félagsrit IV. bls. 195.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0288.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free