Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sauöfé á fyrri öldum.
283
fifca það undir slátrun.1) Slátrið hagnýttu menn sér á svip-
aðan hátt sem nú og gjörðu mörbjúgu, sem Islendingar
urðu frægir fyrir, og liklega blóðmörr lika, þó hans só ekki
getið i sögúnum, Ulliu var þá mest unnin i landinu, brúk-
uð til klæðnaðar og til vaðmála. sem var löglegur gjald-
miðill. þó voru gærur og ull snemma seldar kaupmönnum8)
og 1198 er þess jafnvel getið. að ullarfarmur íslenskur hafi
verið gerður upptækur og seldur i Húðuborg í Normandí.3)
Á 13- öld er stundum getið um sauðfjáreign manna og
þó helst fénað kirkna. Ahafnir margra jarða hafa þá ver-
ið æði stórar, þvi sauðfé allmargt bættist við hina miklu
nautatölu. Pegar féránsdómurinn var háður á Kirkjubæ
J 250 og búinu skift, rak Sæmundur þaðan, auk hinna mörgu
nautgripa, hundrað ásauðar, fimmtigi geldinga og sjö tigi
veturgamalla sauða.4) Fjárrikur hefur Jrorgrimur á Miðhús-
t
um verið. úr þvi Orækja rænti hann fimm hundruðum (G00)
t
sauða.5) Arið 1185 og síðar á kirkjan i Reykholti 150 ær;
Pykkvabæjarklaustur á 1218 lieima á staðnum 220 ær, 257
veturgamla sauði og 95 eldri. 60 lembdar gimbrar, 335
liaga-lömb og auk þess 160 ær ineð únglömbum, til samans
1127 sauðkindur. Þetta þætti enn mikil sauðfjáreign á einu
heimili. sérstaklega þar sem 112 nautgripir líka voru á sama
búi. Garðakirkja á Akranesi á 1220 þrettán kúgildi ásauða
og 30 geldinga. 1250 Bakki i Helgafellssveit 80 ær, 1269
Búr-fellskirkja i Grimsnesi 30 ær. Oddakirkja átti 1270 180
ær og auk þess lá þangað sauðagjald af fjölda mörgum
jörðum. svo kirkjan átti heimting á að fá árlega 85 sauði
fyrir utan margar aðrar tekjur af ýmsu tagi; 1270 á
Valla-neskirkja 150 ær, 1274 Staður á Olduhrygg 120 ær og 120
sauði. aðrar kirkjur minna.6) Benda þessi dæmi á töluvert
’) Eeykdæla bls. 60.
s) Ljósvetningasaga 1896, bls. 125.
s) Dipl. isl. I., bls. 718-719.
*) Sturlunga. Rvík III bls. 162.
5) Sturlunga II, bls. 240.
6) Dipl. isl. I, bls. 279-80, 396, 418, 470. 475, 577; II, bls. 63, 83,
86-87, 114.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>