- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
359

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hej-ásetning

359

rentukammerinu uppástungur um heyásetning. Stakk hann
upp á þvi að lögbjóða skyldi, að hreppstjórar á hverju
hausti skoðuðu hey manna og fénað og ámintu bændur um
að skera, ef þeirn sýndist of djarfiega sett á heyin. Svo
áttu hreppstjórar aftur í öndverðum nóvember að gera nýja
rannsókn, og ef það þá sýndi sig, að bóndi eða bændur
höfðu eigi hlýtt hinni fyrstu tilskipun, átti hreppstjóri að
hafa vald til að skera eða láta skera það af peningnum,
sem umfram var þau ákvæði, er gjörð höfðu verið um
haust-ið. Nýja skoðun mátti líka gera i janúar eða febrúar, þegar
hart var i ári, og mátti þá líka skera, ef þörf krafði.
Rentu-kammerið vildi þó ekki fallast á þessar uppástungur, þótti
of nærri gengið frelsi manna og eignarrétti. Síðar skráði
sami maður ritgjörð á dönsku um matforðabúrastofnun á
íslandi til hjálpar i hallærum,1) og að endingu ritgjörðina
um heyforðabúr í gömlu Fólagsritunum. Stefán amtmaður
stingur þó í þeirri ritgjörð ekki upp á heyforðabúrum í
vanalegum skilningi, hann vill láta lögbjóða fyrningar á
hverjum bæ. Búandi menn á hverri jörðu á öllu landinu
áttu að viðlögðum sektum að skyldast til að gjöra
fyrninga-búr eða forðasafn á ábúðarjörð sinni í sérstakri hlöðu eða
he}Ttóft, ennfremur átti hver bóndi að fyrna einn heyhest
(20 fjórðunga) töðu fyrir hvert kúgildi, sem hann setti á
vetur. Á þessum fyrningum mátti ekki taka nema í
hey-skorti og með vitund og leyfi sóknarprests og hreppstjóra.
Hreppstjórar áttu að hafa eftirlit með að lögum þessum væri
hlýtt. Ekki varð þó neitt úr að stjórnarráðstafanir væri
framkvæmdar i þessu máli og datt það svo niður. Sem
amtmaður á Norðurlandi brýndi Stefán Þórarinsson það oft
fyrir hreppstjórum, að þeim bæri að hafa eftirlit með
ásetn-ingu og heybirgðum bænda. Komst þá, í tíð Stefáns
amt-manns, upp í vana, að amtmenn i Norðuramtinu álitu það
skyldu sina, að hlutast til um búnað bænda og hvetja þá
til varúðar og fyrirhyggju og gera ýmsar ráðstafanir þar

») St.*Thorarensen: Tanker om Uaar, samt Fede-Magasiners
Op-rettelse i Island. Kbhavn 1792.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0377.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free