- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
365

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hej-ásetning

365

við heyforðabúrin skal greiða af notendum og sveitarsjóði.
»Vextir af þeim hluta forðans, sem eigi er notaður, sem og
fyrningargjald eða endurnýjunarkostnaður á honum,
endur-greiðist sveitarsjóði úr landssjóði að helmingi, þó eigi yfir
40 aura fyrir hvern hest (100 kg.) í þessum hluta forðans«.
Árangurinn af þessari lagasetningu virðist ekki hafa orðið
mikill; árið 1912 var búið að stofna tvö kornforðabúr, auk
þess höfðu tvö áður verið til i Pingeyjarsýslu, annað i
Skútustaðahreppi siðan 1883, hitt i Helgustaðahreppi siðan
1890, þau voru stofnuð sumpart fvrir hallærisgjafir 1882 og
sumpart með lánsfó.1) Um stofnun heyforðabúra hefir litið
he^-rst, þó er getið um að vinnumenn og vmnukonur hafi
stofnað heyforðabúr í Fnjóskadal.2)

Fyrir ötult fylgi Guðmundar Björnssonar landlæknis
tók þingið 1913 hallærisvarnarmálið til meðferðar, voru þá
sámþyktir viðaukar við kornforðabúrslögin 1909, lög um
bjargráðasjóð íslands og lög um forðagæslu; öll lögin
stað-fest 10. nóv. 1913. Bjargráðasjóður Islands á að vera
alls-herjarsjóður fyrir alla landsmenn til hjálpar i hallæri eða
til að afstýra því. Hvert sveitarfólag og bæjarfólag á
Is-landi skal á ári hverju greiða iðgjald i bjargráðasjóð, 25
aura fyrir hvern mann, sem þar er heimilisfastur, þegar
manntal er tekið. Landssjóður styrkir sjóðinn árlega með
tillagi, er nemur 25 aurum fyrir hvern mann. fað fó, sem
landssjóður leggur til. er sameign allra landsmanna, en alt
það skal vera sóreign hverrar sýslu eða kaupstaðar, sem
þaðan rennur í sjóðinn. Lögin um forðagæslu ákveða að
forðagæslumenn skuli vera í hverjum hreppi til þess að hafa
gát á heybirgðum, kornvörubirgðum og öðrum
fóðurbirgð-um hreppsbúa og meðferð þeirra á búpeningi.
Forðagæslu-menn skal kjósa 3. hvert ár til 3 ára i senn um leið og
hreppsnefndarkosning fer fram, þeir fá 2 kr. úr sveitarsjóði
fyrir hvern dag, sem þeir eru í skoðunarferð. Peir eiga að
koma tvisvar á vetri til eftirlits á hvert heimili, eða oftar

’) Búnaðarrit XXVI, bls. 270: VII, bls. 57. Frevr VII, bls. 68.

s) Freyr VIII, bls 128; IX, bls. 22.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0383.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free