Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
36S 386 Sauðfjárrækt
Þegar kindur verða undir fönnum, eða á annan hátt
kom-ast í sveltu, eta þær stundum ullina hver af annari, sem
hnoðast saman í meltingarfærum þeirra i harðan kökk, sem
er kallaður mýll\ það eru vanalega hnöttóttar kúlur 1—2
þumlungar að þvermáli með harðri skarnskán að utan, en
innan i er samundið og samtroðið ullarhnoða.1) í hörðum
vorum drepast lömb oft af mýlum. sem »orsakast af ull og
hroða, sem lömbin eta. Myndar það göndul i vinstraropinu
(siggunni) og af þvi drepast lömbin*.8)
Flestallur fénaður á Islandi fær nú einhverja gjöf á
hverjum vetri, þó beitin sé notuð eins og hægt er.
Sum-staðar er beitarlandið nærri bæjum, sumstaðar fjær,
sum-staðar er féð rekið heiman að skemri eða lengri veg til
beitarinnar, sumstaðar er þvi beitt frá beitarhúsum. Pau
eru mörg í sumum héruðum. Sigurður Gunnarsson segir i
sóknarlýsingu Hallormsstaðar, að beitarhús séu frá hverjum
bæ í Skógum á Héraði og sumstaðar tvenn og þrenn, eins
r
frá mörgum bæjum í Skriðdal. A 18. öld segir Magnús
Ketilsson8) að beitarhús hafi verið algengust norðanlands,
einkum við sjávarsíðuna, þau voru oftast flórlögð, ferhyrnd
r
og engar jötur. x\ stöku stað Var í þá daga heyjað frá
seljum og fó beitt þaðan að vetrarlagi.*) Mismunandi er
það eðlilega eftir veðurlagi hvað lengi er beitt daglega.
Páll Stefánsson segir: »Hæfilegan beitartima má telja 8
kl.tíma á dag, þá ekki er gefið, og má hafa hann eftir þvi
styttri sem meira er gefið, en þó skyldi ekki beita skemur
4, sem lifði 18 vikur í skafii, varð 12 vetra, vænsta skepna og mesta metfé.
í Klausturpósti VIII, 1825. bls. 80 er þess getið. að í
læknisfræðis-tímariti dönsku, Ny Hygæa 1823 bls. 419 sé sagt að »sauðkindur, er
sjálfala gangi á Islandi, sofi í 6 mánuði af vetrinum undir snjó og
viðarrunnum«.
Fé verður líka stundum undir fönnum i Sviss og etur bvað af
öðru ullina, myndast þá lika mýlar í maga þeirra. Sbr. J. TynAall:
Naturvidenskabelige Fragmenter. Kbbavn 1895, bls. 60. Fjárkvarnir
eða fékvarnir heita smáir og þéttir kögglar í mör kinda; sumir safna
þeim saman og halda að sér þá heppist vel fjárrækt.
2) Jón H. Porbergsson: Um hirðing sauðfjár 1912, bls. 23.
9) Sauðfjárhirðing 1778, bls. 59-60.
4) Gl. Félagsrit VII, bls. 200—201.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>