Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
36S 386 Sauðfjárrækt
yfir 140 pd., 275 90—90 pd. Til jafnaðar voru sauðir
Bárð-dælinga beztir, 119 pd. að meðaltali. Nokkrir þrevetrir
sauðir ógu 150—150 pd.1) Til samanburðar má geta þess,
að kaupfélag Reykjavikur keypti nálægt 1890 sauðahóp
austan úr Mýrdal, var enginn sauður yngri en þrevetur, en
meðalþunginn á fæti var 84x/2 pd. eða eins og vænir dilkar.
Sýnir þetta að lélegir liafa sauðirnir þá verið sumstaðar á
Suðurlandi,*) þó þessir eðlilega hafi verið töluvert slæptir
af löngum rekstri. Annars er fátt um skýrslur um fé á fæti
nema á einstöku heimilum og þá vanalega aðeins skýrt frá
hinu vænsta. I Breiðdal og á Héraði austan Fljóts er
meðal-vigt á veturgömlu fé talin 85 pd., en vestan Fljóts og í
Yopnafirði 90 pd.3) Fóð i Fjallasveit er mjög vænt, í
Möðru-dal eru tveggja vetra sauðir vanalega 160—170 pd. og
vetur-gamlar kindur 110—120 pd. Á Hólsseli á Fjöllum var ær
ein 3 vetra 160 pd. og veturgamall sauður 144 pd. og
tvæ-vetur sauður af Fjöllum var seldur til Yopnafjarðar er vóg
184 pd 4) Hallgrimur í’orbergsson segir að á haustum só
þar jafnaðarvigt á eldri ám 120 pd.; tveggja vetra sauðum
150 pd., veturgamalt fó 110 pd. og gamlir stórir hrútar 200
pd. Haustið 1907 vigtuðu 32 sauðir tveggja vetra á
Ær-lækjarseli i Kelduhverfi 141 pd. að meðaltali og nokkrar
vænar kindur veturgamlar 120 pd. Utan til á Jökuldal
vega veturgamlir sauðir 90 — 100 pd., þriggja vetra sauðir
130 — 135, og dilkar 65 pd.5) í Geiradal í
Austur-Barða-strandarsýslu vógu mylkar ær 100 — 130 pd. haustið 1906,
ein dilkær 140 pd., en dilkurinn 102 pd., gimbradilkar vógu
72—86 pd., nokkrir 90 pd„ dilkhrútar 80—90 pd., nokkrir
yfir og um 100 pd. og tveir hinir vænstu hrútar tvævetrir
’) Búnaðarrit I, bls. 175; II, bls. 211. í Búnaðarriti XXII, bls.
271 (1908) segir »þungi eins til tveggja vetra gamalla kinda. sem
kaupfélag fingeyinga hefir sent út, hefir verið að meðaltali 1884 110
pd., 1889 120 pd., 1895 124 pd. Tölurnar sýna að féð hefir stöðugt
farið batnandi«.
8) Freyr VIII, bls. 112.
3) Freyr I, bls. 100.
*) Búnaðarrit XVI, bls. 50. Freyr I, bls. 100
") Búnaðarrit XXII, bls. 307, 310, 311.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>