- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
384

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36S

386 Sauðfjárrækt

og 5 vetra gömlum sauð, að þessi heíir haft yfir hinn frá
5 til 8 marka mörs, og eins 5 til 8 marka kjöts, báðir eins
meðfarnir frá lambsbeini að öllu lej’ti. A meðan sauður er
að vaxa, sem er til þess hann er 4 vetra, fitnar hann aidrei
eins og næsta ár eftir eða 5ta árið, það 6. fer hann aftur
að þorna, og verður þá viðlika til mörs og holda og
þá hann var 4 ára. Fyrir þessu hefi eg margra ára
reynslu*.1)

Mjög mismunandi er það hvað sauðir leggja sig í
yms-um héruðum landsins, bæði eftir kynferði, meðferð og
land-kostum og svo eftir árferði. Yænstir munu sauðir vera i
norðaustursyslum, i Pingeyjarsýslum’ og Norðurmúlasýslu, í
Bárðardal, Mývatnssveit og Fjallasveit, i Pistilfirði, á
Langa-nesi og Jökuldal. Eðlilega er helzt getið um vænstu
sauð-ina og er örðugt að fá meðaltal úr lieilum sveitum, en það
yrði eflaust langt fyrir neðan hámörkin, sem oftast er talað
um. Sæmundur Eyjólfsson segir að á Jökuldal. Fjöllum, í
Mývatnssveit og Bárðardal skerist fullorðnir sauðir að
með-altali með 70—80 pundum kjöts og 20 pundum mörs, en
það mun nokkuð riflega til orða tekið, að þetta sé
meðal-tal. I Fjallasveit er féð feitast og það ber við, að kindur
verða svo þungfærar af fitu, að þær mega ekki risa, ef þær
leggjast óþægilega.2) Arið 1863 er þess getið, að i
Mývatns-sveit sé »eigi sjaldgæft að fullorðnir sauðir bafi yfir 3
fjórð-unga mörs og síðasta haust (1862) var i einum sauð þar 63
merkur af mör, þótt alment skærist mjög illa.3) Pegar eg
ferðaðist um þessi héruð 1882, 1884 og 1895 var á
Jökul-dal, i Þistilfirði og á Langanesi talið að fall vænna 3—4
vetra sauða væri 70—80 pd. og mörinn 2—3 fjörðungar;
þetta eru auðvitaö hinar allra vænstu kindur. Fjárbóndi i
Fjallasveit sagði mér 1882, að meðalsauður þriggja vetra
skærist þar með 50—60 punda falli og 16—17 pd. mörs;
á Héraði var þá talið að meðalsauður skærist þá með 60

J) Grl. í’élagsrit V, bls. 99.

s) Búnaðarrit VIII, bls. 15.

3) Norðanfari II, 1863. bls. 37.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0402.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free