Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Fjárkláði
403
og skipaði skoðun á öllu fé og niðurskurð á kláðafé eftir
tilskipun 12. raai 1772. Skipun þessari mun þó víst óvíða
hafa verið hlýtt, enda var sú takmörkun gerð. að bændur,
sem áttu kláðafé, fengu kost á fresti með niðurskurð, ef
þeir vildu gjöra tilraunir með lækning á kláðanum á sjálfra
þeirra kostnað og gátu varnað kláðafónu samgöngur við
heilbrigt fó1). Undir forustu dr. Jóns Hjaltalíns og Teits
Finnbogasonar dýralæknis voru gerðar töluverðar tilraunir
til lækninga, þó með litlum árangri. í desember mánuði
1856 er þess getið, að kláðinn þegar sé búinn að fá mikla
útbreiðslu um Arness-, Rangárvalla-,
Borgarfjarðar-ogMýra-sýslur, kláði hafði sézt á nokkrum kindum i Mýrdal, einnig
norður i Miðfirði, um Skógarströnd og Miðdali. Viðast var
sjúkdómurinn þó vægur nema i Olfusi. Grafningi og
Mos-fellssveit, þar virtist hann annarar og verri tegundar2).
Trampe greifi hætti fljótt að framfylgja niðurskurði,
gaf 13. febrúar 1857 út auglýsing um kláðalækningar og
sendi Teit Finnbogason um amtið til »að leita allra þeirra
meðala, sem reynast mættu hentug til að útrýma sýkinni« ;
átti þá lika að baða fó um haustið. Frá þeira bæjura, sera
vart hafði orðið við kláða seinustu 14 dagana var bannað
að reka nokkra skepnu á fjall3). Kláði sá, sera hafði
stung-ið sér niður í Vesturumdæmi, i Mýra-, Hnappadals-,
Snæ-fellsness- og Dalasýslum, var mjög vægur, og var að mestu
horfinn næsta vor, en í Borgarfjarðarsýslu og annarstaðar
á Suðurlandi var sýkin víða skæð og hættuleg. Amtmenn
nyrðra og vestra stungu þá þegar upp á kláðaverði tii að
verja umdæmi þeirra og Jörgen Pjetur Havsteen amtmaður,
sem var ákafur niðurskurðarraaður, stakk nú þegar upp á
þvi að alt kláðasjúkt og grunað fé væri skorið. I saraa
strenginn tók alþingi 1857, þar var samið lagafrumvarp um
almennan niðurskurð á öllu fé bæði sjúku og heilbrigðu i
Arness-, Kjósar-. Gullbringu- og Borgarfjarðarsýslum fyrir
’) Pjóðólfur VIII. bls. 145-146.
*) Pjóðólfur IX, bls. 19.
3) Tíðindi urn stjórnarmálefni Islands I, bls. 168—173.
26*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>