- Project Runeberg -  Ágrip af Náttúrusögu /
235

(1884)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

<235

kólna þau nokkuð að ofan, og myndast gjallskorpa.
Opt rennur svo hin brædda hrauneðja, sem undir
er, áfram, en efsta lagið situr eptir. A þenna hátt er
Surtshellir myndaður, og fleiri hraunhellar hér.

Upp úr hraununum koma margs konar gufur,
hlaðnar ýmsum efnum, t. a. m. matarsalti og salmiaki.
J>egar hraunin kólna, setjast pau i kristalla á
hraun-in. J>á koma og upp kolsýra og
brennisteins-vatns-efni. Yatnseínið sameinast siðan súrefninu i loptinu,
en brennisteinninn verður laus, og sezt á hraunin.

Eldgos hafa orðið hér mörg og stórkostleg á
Is-landi. Siðan land byggðist hefir gosið á 20—30
stöð-um, og á sumum íjarska opt. Hekla t. d. hefir gosið
18 sinnum, svo í frásögur sé fært, og Katla 13 sinnurn,
Eldgos hafa opt valdið miklu hallæri fyrir menn og
skepnur. Bæir og heil héruð hafa eyðilagzt fyrir
öskufalli, jökulhlaupum, hraunrennsli og jarðskjálptum.
Eitt hið voðalegasta og skaðlegasta eldgos hér, sem
sögur fara af, var 1783, þegar gaus i Yarmárdal.
J>ar kom upp svo mikið hraun, að hvergi í heimi vita
menn dæmi til slíks við eitt eldgos. |>á féll aska
viðsvegar um land, og afleiðingarnar urðu þær, að
skepnur manna dóu hrönnum saman, og siðan féllu
9000 manna af hor og hungri, og lá þá við landauðn
(móðuharðindi). Siðasta öskufall, sem nokkuð hefir
kveðið að, var 1875, er Dyngjufjöll gusu. Eéll þá aska
um Austurland ; en þó mest ofarlega á Jökuldal,
J>ar var öskulagið nálægt 6 þuinl. á þykkt, jafnfallið
yfir allt. Enn eru þar stórir vikurskaflar í hverri laut
og undir hverju halli, þar sem vatn eða vindur hefir
ekki borið það burt.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 18:11:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/natturusog/0249.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free