- Project Runeberg -  Reykjavík. Auglýsinga- og Fréttablað / Annar Árgangur. 1901 /
23:3

(1900-1913)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

93

orðum. Því næst sönsr flokknr Brynj.
Þorlákssonar Eldgamla ísafold. Ki
mintist Tr. Gunnnrsson komingsinR og
var hrópað nífalt húrra fyrir honum.
Yar svo sungið á eftir. Þvi næst sté
herra bókavórður Jón Jakobsson i
ræðustólinn og flutti tölu sína fyrir
fósturjörðinni, en að ræðunni lokinni
söng flokkurinn kvæði herra Einars
Benediktssonar, sem hér er á öðrum
stað í blaðinu. Skáldið Matthías
Jochumsson sté þessu næst í
ræðu-stólinn og rpintist alþingis; var á eftir
sungið: „Lögberg vors lands," eftir
Stgr. Thorsteinsson. Því næst var
hálfrar stundar hvild.

Að þoim tima liðnum var aftur
safnast saman umhverfii ræðustólinn
og flutti þá Jón Ólafsson tölu sína
fyrir minni „Reykjavikur" og var á
eftir sungið kvæði Guðm.
Magnússon-ar. f*ví næst minntist Hannes
Þor-steinsson ritstj. og alþm. Baldvins
Einarssonar — gaf stutt ágrip af æfi
hans og iýsti þýðingu starfa bans, en
á eftir var sungið kvæði Guðm.
Guð-mundssonar skálds. — Ræðuhöldin
og söngurinn var það langbezta á
þjóðhátíðinni, enda spiltist veðrið upp
úr því og fór það sem eftir var að
meira eða minna leyti i
handaskol-um; þó var ekki hægt að gefa
hátíð-atnefndinni sök á þessu, því
undirbún-ingurinn var svo góður sem kostur
var á frá nefndarinnar hendi. —
Horna-blástur var alt af öðru hvoru.

fengfréffir.

X.ng: Fyrnt er grein, sera víst li. nð vera leiðaudi.

Enn af þinginu er fremur fátt að
segja,

fjárlög nýskeð á dagskrá eru sett;
börn vors lands ei um bitlingana
Þegja

bænarskránum þvi rignir niður þétt;
sumir vilja i sjónum leita’ að
hvöl-um,

sumir grúska í fornum ættartölum,
sagnafróðleiknum sumir eftir kikja
og sumir eru víst beinlínis að snikja.

Loks vill stjórnin með lögum oss nú

sýna

á leið vér séum að verða stórþjóð ný,
fast oss bannar að flytja vopn til

Kína,

svo friðarböndum að veröld haldist i;
á Kínverjanum ei kaupmenn- Jengur
græða,

og keisarann eigum vér að fara’ að

hræða,

en sagt er drotning með vatni muni

verjast

gegn vorurn skotum, ef förum vér að-

berjast.

StiJt er ró nú i stjórnarskráar smiði
sterk við sextugustu’ og fyrstu
henn-ar grein,

svo að verður hún vorrar þjóðar prýði,
Voltakross sá, er læknar öll vor mejn;
hennar lykli þá hægt er lika’ að snúa
ef hagfræðingarnir fast í skeggið púa,
því að skerðingar, er skakkar sýndust
standa

láta skipast eftir þeii"ra fitons anda.

Nú á hreindýr og alla fugla að friða,
fólkið að eins má lifa’ á skotnum sel,
en til landplágu lög þau virðast miða
ef Jegst svo tollur á ket og brauð og
mél;

heldur fer þá nú hart að verða’ að lifa,
á hreppinn förum vér beint, ég segi’

og skrifa;
ef ekkertkeypt fæst aðeta né að drekka
þá má alveg spara að gera lög um

„tékka".
Plausor.

Ó[r fíöfuðsfaðnuni.

Á ferðinní hafa ýmsir verið hér
undanfarna tið, þar á meðal Pétur
Guðmundsson, fyr prestur i Grímsey,
Þorsteinn Jónsso.n læknir i
Yestm.-eyjum o. fl. Á þjóðhátíðina i gær
komu margir nokkuð úr nærsveitum
Og austan úr Árnes- og
Rangárvalla-sýslum: séra Ólafur Helgason
Stóra-Hrauni, hr. Eggert Benediktsson
Itaug-ardælum, verzlunarm. Gisli Jónsson
og verzlunarm. Guðm. Oddgeirsson,
báðir af Eyrarbakka, frú Kamiila
Torfa-son Árbæ, Sigurjón Jónsson
verzlunar-maður Stokkseyri, Símon Jónsson
Sel-fossi og margt fleira.

Glufuskipið „(xarthdee" (kolaskip
Jóns Þórðarsonar kaupm.) fór til
út-landa (Skotlands) á mánudaginn var
með um 300 hesta. Með skipinútók
sér far bókhaldari Yaldemar Ottesen.

„Hólar" komu 3. Ág., eins og til
stóð að austan og norðan. Með voru
séra Þorleifur Jónsson Skinnastað,
Friðrik Gíslason úrsmiður Seyðisfirði,
Gisli kaupm. frá Vestmannaeyjum,
verkfræðingur Sig. Thoroddsen o. fl.

CrufuMturinn „Reykjarik" fór
í morgun upp i Borgarnes. Var að
flytja fjölda fólks á þjóðhátíð
Borg-firðinga, sem halda á á
Hvítárbökk-um á morgun.

„Ferona" (skipstj. T. Pettersen) kom
í dag með timbur til Björns
timbur-kaupm. Guðmundssonar, frá Mandal.

Trúlofuð eru Stefán Gunnarsson
skósmiður og Sigriður
Benedikts-dóttir í SkáJhoitskoti.

Knattleikafélag ungra kvenna
hér i bæ, fór suður í Kópavog
síðast-jfliðinn Sunnudag, og skemti sét
allan daginn.

fiœjarstjórnarfundur.

1. ÁgÚBt

1. ÁJyktað að tnka tiiboði Knud
Zimsens um að ganga i þjónustu
bæj-arins í næstu 2 ár til að framkvæma
mæling og uppdrátt yfir bæinn fyrir
2700 kr. laun á ári, skal verki þessu
lokið á nefnduin tíma og ingenieurinn
auk þess, eftir því sem tíminn leyfir
honum frá nefndu verki, vet a til taks
sem ráðanautur bæjarins i öðrum
efn-um.

2. Ályktað að fá Efferisey metna
hvers virði hún sé, og fara fram á
það við alþingi, að eyjan verði afhent
bænum gegn þvi, að hafnarsjóður
kostaði varnargarð þar, til að verja
eyjuna skemdum af sjávargangi, en
það er metið af verkfræðing að það
mundi kosta um 4500 kr.

3. Nefndin, sem sett var til að
í-huga umráða- eða eignarétt
kaup-manna að stakkstæðinu norður með
Hafnarstræti skýrði frá áliti sinu, og
var það á þá leið, að kaupmenn
mundu i upphafi hafa tekið umrædd
pláss til afnota til fiskverkunar án
nokkurrar útmælingar til þess af
bæj-arins hálfu, en að með síðaii
upp-mælingu á þessum stakkstæðum muni
þessi afnot kaupmannanna á
svæð-unum i nefndu augnamiði hafa verið
samþykt af bæjarfógeta, sem þá hafði
útmælinguna i bænum á hendi.

4. Bæjarstjórnin vildi eigi samþ.
útvísun til Gunnars Einarssonar undir
hús á stakkstæðinu fyrir vestan
vest-ara bankapakkhúsið.

5. Bæjarstjórnin samþ. að láta falla
niður 4/5 af skólagjaldi fyrir börn Franz
Siemsens vegna burtuveru þeirra úr
skólanum sakir veikinda.

6. Uppástunga frá ingemeur Knud
Ziemsen um nýtt,, stórt þvottahús við
Laugarnar með nýju fyrirkomulagi
fyr-ir um 20,000 kr., þar sem settir væru
fastir balar, er leigðir yrðu fyrir litið
gjald og kostnaðurinu þaunig
borgað-ur. Voru þeir Jón Jensson, Guðm.
Björnsson og Halld. Jónsson kosnir í
nefnd til að ihuga málið og koma með
tillögur um það til bæjarstjórnarinnar.
Frestað byggingu hins nýja húss á
meðan.

7. Bæjarstj. vildi ekki nota
for-kaupsrétt á erfðafestulandi Jóns
Guð-mundssonar á Rauðará, sem hann er
að selja fyrir 4500 kr.

8. Brunabótavirðingar: Hús
Her-manns Einarssonar og Guðm.
Þor-varðssonar á Selsholti 4140 kr.

í síðasta blaði misprentaðÍRt uppliœðin
á virðingarverði á liúsi hr. verzlunarraanns
Arna Einarssonar. Þar stóð: 4765 kr., en
á að vera: 3765 kr.

Gylt brjóstnál fanst á
Kirkjugarðs-stignum á þjóðrainningardaginn. Vitja
má í Vosturgötu 50.

Kassimir-slal — tvöfalt — var tekið
’í misgripum fyrir einfalt á
þjóðminning-ardaginn. Gerið svo vel að skifta sem
fyrst í þingholtsstreeti II.

Sjálfblekungur hefir tapast.
Finn-þar»andi gjöri svo vel og skili honnm i
Aldar-I prentsmiðju, g’«gn í’undai’launum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 16:08:10 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/reykjavik/1901/0093.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free