- Project Runeberg -  Reykjavík. Auglýsinga- og Fréttablað / Annar Árgangur. 1901 /
28:1

(1900-1913)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

II. árgangui*.

31. tölublað.

REYKJAVIK

AtratTBHsraA- o<» ihbttabijli).

Útgefandi og ábyrgðarmaður :

Þorvarður í’or v ar ð s son.

Laugardaginn 7. Sept, 1901.

Afgreiðsla bl. er hjá útg., þingholtsBtr. 4.
Verð á „Reykjavlk" út um land er I kr.

„Reykjavik" kemur út á
Föstu-dögum (siðdegis). Auglýsingum sé
skilað í siðasta lagi á
Fimtudags-kvöldum.

ALT FÆST f THOMSENS BÖÐ.

FOT fyrir mánaðarafborgun fást

REINH. ANDERSON.

VERZLUN

<3óns úCdgasonar
12 LAUGAVEG 12

heflr alls konar

ágætisvöru

til heimilisþarfa fyrir gifta og ógifta

(les 27. nr. þessa blaðs).

• • •

Sama verzlun tekur alls konar
is-lenzkar afurðir, sem hvergi fást
betur borgaðar.

(Bfna og cíóavélar

seiur KRISTJÁN ^ORGRÍMSSON.
*####**#*#*######*####*###*##*##♦######*####***######

þekti Boston alt of vel til þess að
gera sér nokkrar ástæðulausar
glæsi-vonir; og nú hafði hann farið svo
viða og séð svo mikið af heiminum,
að hann rar búinn að missa sína
barnalegu æskutrú á það, að Boston
tæki fram öllum öðrum borgum i
heim-inum. Auðvitað vonaði hann, að sér
mundi takast að komast hér áfram,
en hann vissi, að þetta var þó í
smá-bæ, og að þetta mundi að eins
tak-ast eftir langa baráttu við keppinauta,
sein voru eins vel úr garði gerðir og
stóðu eins vel að vígi eins og hann
sjálfur. Hann vissi, að baráttan hlyti
að verða langvinn, og þó að hann
sigraði á endanum, þá mundi
sigur-inn verða býsna erflður. Hann fór
að óska með sjálfum sér, að hann
hefði heldur verið kyrr i Flórenz; þar
hafði hann þó ekki haft við aðia að
keppa og sigurinn því orðið
auðunn-ari, en auðvitað hefðtt heldur
sigur-launin ekki orðið eins álitieg þar eins
og hér. Honum fanst hann sjálfur
hafa verið flón að vera að koma heim
og þó fanst honum hann vita, að
hann hefði aldrei unað sér til
lengd-ar í Ítalíu, án þess að reyna- að brjóta
sér braut heim.

Þegar hann fór að heiman fyrir
flmm árum, hafði hann verið svo
efnaður maður, að hann gat iifað
hvar sem hann vildi af ársvöxtum
eigna sinna, og i Ítalíu, þar sem svo
miklu ódýrara er að lifa, var hann
auðugur maður. En þegar hann fór
að heiiuan hafði hann trúað vinum
síniun fyrirað ráðstafa eignum sínum,
og þeir höfðu varið öllu fé hans til
að k aupa fyrir hlutabréf i
járnbrautar-féiagi, þvi að um það leyti keyptu
ailir Bostonsmenn, sem vildu koma
fé sinu á góða vöxtu, hlutarbéf í þessu
félagi. Bostonsmenn hafa tröilatrú á

í

í skóverzluninni
4 cJlusíurstrœti 4

eru alt af miklar biigðir af
út-lendum og inniendum

SKÓ FAT N A ÐI
Alt. afar ódýrt.
j fe ^icjurðssor^ ©unnctr80oi\. ^

Blámanna-blóð.

Saga eftir W. D. HOWELLS.

’2. kapítuli.

Krftmh.

Já, þennan Sunnudag iangaði liann
nijög til Ítalíu aftur. Hann vai-
bú-inn að vera tvo daga í Boston og
hafði varið timanum til að leita uppi
alt það gamia, sem hann þekti, og
athuga hið nýja, sem hann þekti ekki
áður. En honum fanst hann ofboð
einmana og hálf-ókunnugur í síuum
gamla fæðingarbæ. Fimm ár hafði
hann verið erlendis og íui fanst
hon-um eins örðugt að átta sig aftur hér
heima, eins og honum fyrrum hafði
þótt þungt að skilja við átthaga sina.
Hn-nn fann engan nýungarinnar unað
í að hugsa um framtið sina. Hann

Héraðslæknirinn er I sumar (til 30. Seft.)heima 10—11«

10 au. dírdfsofni

(10 arkir g6ður skrifpappír, 10 umslög, þerriblað, penui

fáBt í ÞlNGHOLTSSTR. 4.

í?orv. ;í?orvarð88on.

hlutabréfum Bostonsfélaga. Hlutabréf
hans gáfu honum i árstekjur 6000
dollara fyrstu árin, en nú upp á
síð-kastið gáfu þau ekki eyrisvirði af sér,
svo hann hafði alis engar tekjur af
eign sinni. Hann hafði verið búinn
að fastráða við sig að setjast að sem
læknir í Flórenz, þvi læknisfræði hafði
hann numið og lagt sérstaka stund
á taugasjúkdóma; ætlaði hann sér að
ávinna sér aðsókn ails þess aragrúa
af taugasjúkum löndum hans, sem
ávalt streyma árlega til Fiórenz,
sí-felt fleiri og fleiri á hverju ári; en
nú varð hann að hætta við það.
Garó-faló vinur hans, sem hafði verið
hon-um samtíða að stunda iæknisfræði í
Vínarborg og var nú orðinn prófessor
i iæknisfræði i Flórenz, hafði ráðið
honum tii að selja hlutabréfin sin og
setjast að i Flórenz; það mátti þó
æflnlega fá talsvert fyrir þau, því að
allir bjuggust við, að þau mundu
bráðum stiga aftur i verði og fara að
gefa af sér góða vöxtu eins og áður.
Hann vildi þó ekki fallast á þetta,
enda þótt Garófaló sýndi honum fram
á, að hann mundi verða að selja þau
hvort sem væri, er hann kæmi heim
til Boston, til þess að hafa eitthvað
til að lifa á þangað t,il hann væri
bú-inn að ávinna sér svo mikla aðsókn
sjúklinga, að hann gæti lifað af
iæknis-starfl sínu. Svo hafði hann nú lika
sinn skerf af þessari rækt, sem allir
Amerikumenn bera til ættjarðar
sinn-ar, svo að þeim flnst það skyida sin,
a.ð eyða æfl sinni heima á henni.
Meðan hann hafði nóga peninga,
hafði honum þótt allfýsilegt.
að setjast að í Ítalíui en þegar hann
var orðinn peningalaus, þá fór
þjóð-ræknin að vakna aftur hjá honum.
Garófaió minti hann á alt það mikla
andlega iif í vísindum og bókmentum,
sem drottnaði i Flórenz. Olney
svar-aði honum ekki þvi, að sér findist

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 16:08:10 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/reykjavik/1901/0111.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free