- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fyrsta Bindi /
III

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Svo mikið og mart, sem Íslendíngar luifa gjört til að viðhalda
og endurlífga þekkíngu á sögu og fornfrœðum Norðurlanda,
þá hafa þeir ekki síður verið atorkusamir í að semja ritgjörðir
á vora túngu um land vort sjálft, og um sögu þess og ástand
í öllum greinum; en svo heflr verið ástatt híngaðtil, að allar
livatir liafa verið meiri til að koma á prent þeim ritgjörðum, sem
elztar voru og framar snertu öll Norðurlönd en Isiand eitt, því
þar reið á fyrst og fremst, að allir menn, og þó einkum
þjóðirnar her á Norðurlöndum, kæmist í ljósan skilníng um,
hversu nauðsynlegt þeim væri og gagnlegt að rifja upp fyrir
sér endurminnínguna um hina fornu túngu, sögu og fornfræði
þeirra, sem því nær var að öilu gleymd að heita mátti, en
það sem snerti ísland eitt mátti því fremur bíða, sem
alis-herjar ritin, er vcr megum svo kalla, liafa á svo margan liátt
verið Islendíngum sjálfum bæði til fróðleiks, sænular og
upp-hvatníngar.

Nú er svo lángt komið, að Norðurlanda þjóðir eru, eins
og aðrir, farnar að kappkosta liver um sig að rannsaka sögu
sína bæ.ði að fornu og nýju, og það ljós, sem Íslendíngar
hafa hvað mest tendrað, lýsir nú með fullri birtu; því er nú
og kominn tími til, að Íslendíngar gefi gaum að sögu lands
síns sérílagi, og leggi allt kapp á, ekki síður en aðrar þjóðir,
að koma því í ljós, sem svo lengi heílr verið til safnað, og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:03:43 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/1/0009.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free