- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
589

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ÖRNEFNI í I>ORSKAFJ ARÐAR ÞÍNGI.

589

heitir nesið allt milli þorskafjarðar, sein er að vestanverðu,
og Berufjarðar, að sunnanverðu, sem nú er kölluð
Keykhóla-sveit í Barðastrandar sýslu; framan til á því sunnanverðu
standa Reykhólar. pað er enn kallað Reykjanes, og hefir
Úlfr átt mest alla Reykhólasveit.

Saurbær: „^á fara menn út með Gilsfirði til Saurbæjar’’ (57).
Svo heitir vestasti hreppr í Dalasýslu, út með Gilsfirði að
sunnanverðu.

Skáldstaðir (45). Sá bær er í Reykhólasveit, við botninn á
Beruflrði, og liggja nærri saman túnin á Skáldstöðum og
Beruflrði. Bærinn hefir eun sama nafn, og er bygðr.

Steinólfsdalr (44). Sá dalr er nú kallaðr Bæjardalr, og liggr
hann fram af Króksfirði að sunnanverðu; framan til í
hon-um er Steinólfshaugr.

St einólfshjalli í Fagradal (43) þar sem Steinólfr bjó, þar er
nú kallaðr Ytri-Fagridalr, og er innsti bær á Skarðströnd,
en hjallinn fyrir ofan bæinn heitir Steinólfshjalli, og hefir
bærinn líklega staðið þar áðr, en verið seinna færðr neðar.

Stokkshjalli: . . . „en sva lauk, at porbjörn féll fyrir póri,
ok heitir þar nú Stokkshjalli" (62). Sá hjalli er upp af
bænum í Skógum, og liggr hann neðanvert við
ijallsbrún-ina. Fremst á endanum á hjallanum er grjóthaugr, almennt
kallaðr Stokkshaugr, og er það rétt í miðsmorguns stað frá
bæn-um; hjallinn er enn kallaðr Stokksbjalli.

Styrsbrekka (66). Hún heitir enn sama nafni, og er efst á
brúninni á Hjallahálsi að sunnanverðu, þar sem vegrinn liggr
upp, og er mjög brött; hún liggr frá austnorðri til útsuðrs.

Tröllagata: (lEptir þat féll Örn þar á götunni, ok heitir þar
nú TröIIagata" (62). Sú gata er nú kölluð Traustagata,
hún liggr frá Skógum út að Kinnarstöðum, og svo út að
Hofstöðum.

Túnga: tiHann (pórir) bað furíðar, dóttur Hallsteins goða, til
handa Ketilbirni fóstbróður sínum, ok fékk þann kost, ok
gjörði bú í Túngu í Ivróksfirði" (57). (1Þeir róa vestr yfir
fjörð, ok lendu í Laxárós, þar kom til móts við þá Grímr
af Völlum, ok Hergils son hans, þeir voru X saman. feir
fóru upp til Túngu um nóttina" (74). Af því að tveir
bæir eru við Króksfjörð, sem báðir eru nefndir Túnga (það
er Mýrartúnga og Munaðs- eða Miðnes-túnga, sem ýmist

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0601.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free